Bannað að birta umdeildar grænmetisauglýsingar Stefán Ó. Jónsson skrifar 9. janúar 2019 14:00 Aðalhetju auglýsingarinnar leist ekkert á innflutta grænmetið. AUGLÝSING FÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
Áframhaldandi birting á umdeildum auglýsingum Sölufélags garðyrkjumanna, þar sem rýrð var kastað á innflutt matvæli, hefur verið bönnuð. Þetta er niðurstaða Neytendastofu eftir að heildsalan Innnes, sem flytur inn matvæli, kvartaði til stofnunarinnar í maí síðastliðnum. Um svipað leyti lagði Innnes inn beiðni um lögbann við sýningu auglýsinganna til embættis Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.Sölufélag garðyrkjumanna réðst í umrædda auglýsingaherferð í maí í fyrra. Auglýsingarnar, sem spilaðar voru í sjónvarpi, útvarpi og á netinu, eiga það sammerkt að viðskiptavinur gengur um verslun, tekur upp grænmeti eða ávöxt sem á stendur „Imported,“ [innflutt] leggur upp að eyranu og heyrir þá hljóð, til að mynda að sturtað sé niður úr klósetti, hljóð í þungavinnuvélum og vélagný eða finni ólykt. Auglýsingunum lauk svo á orðunum: „Grænmeti sem ber merkið okkar er ræktað með hreinu íslensku vatni. Hvaða vatn fer í gegnum grænmetið þitt? Íslenskt grænmeti, þú veist hvaðan það kemur."Sjá einnig: Kvarta undan herferð Félags garðyrkjumannaHér að neðan má sjá eina þessara auglýsinga, sem þó hefur verið átt við. Búið er að klippa framan af henni og þannig fjarlægja níðið um innfluttu matvælin.Í kvörtun Innnes til Neytendastofu er vísað til ummæla markaðsstjóra Sölufélags garðyrkjumanna í fjölmiðlum þar sem hann sagði að félagið vissi að skilaboðin væru ögrandi. Það taldi Innnes til marks um að Sölufélag garðyrkjumanna hafi verið „fullkomlega meðvitað um hver tilgangurinn væri með þessum nýju auglýsingum og hvaða hughrif vöknuðu við sýningu á þeim.“ Því sé haldið fram að „innflutt grænmeti og ávextir séu ræktaðir úr skólpvatni, við mengandi aðstæður, af því sé vond lykt og að brotið sé á réttindum starfsfólks sem sinni ræktuninni. Með því sé verið að lýsa tilteknu eðli vörunnar og einkennum hennar með blekkjandi hætti gagnvart neytendum,“ sagði í kvörtun Innnes og bætt við að fyrirtækið hefði farið fram á lögbann á auglýsingarnar.Ekki ætlunin að koma höggi á innflytjendur Sölufélag garðyrkjumanna hafnaði því alfarið að auglýsingar þess brytu í bága við lög sem banna óréttmæta viðskiptahætti. Markmiðið með hinum umþrættu auglýsingum hafi fyrst og fremst verið að upplýsa íslenska neytendur á „skemmtilegan og myndrænan hátt um gæði og ferskleika íslenskra afurða, ekki að koma höggi á innflytjendur erlends grænmetis og ávaxta,“ sagði í rökstuðningi sölufélagsins. Neytendastofa taldi að þrátt fyrir að ekki væri vísað með beinum hætti til Innnes, eða annarra samkeppnisaðila Sölufélags garðyrkjumanna, væri augljóst að skírskotað væri til innflutts grænmetis og ávaxta. Gefið væri í skyn að aðstæður við ræktun, hreinlætis og gæða þess væri ábótavant. Taldi Neytendastofa því að auglýsingarnar fælu í sér villandi samanburð, væru neikvæðar og lítilsvirðandi í garð keppinauta á markaði og með þeim væri kastað rýrð á vörur Innnes. Af þeim sökum bannaði Neytendastofa Sölufélagi garðyrkjumanna að viðhafa þessa viðskiptahætti og beindi þeim fyrirmælum til fyrirtækisins að fjarlægja auglýsingarnar þaðan sem þeim hafði verið komið á framfæri.Ákvörðunina má lesa í heild sinni hér.
Tengdar fréttir Kvarta undan herferð Félags garðyrkjumanna Innnes hefur kvartað til Neytendastofu vegna auglýsingaherferðar sem ber saman innflutt og innlent grænmeti. Framkvæmdastjóri félags garðyrkjumanna segir herferðina hafa átt að vera skemmtilega. "Ekki allir sem hafa húmor fyrir þessu.“ 15. júní 2018 06:00 Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira
Kvarta undan herferð Félags garðyrkjumanna Innnes hefur kvartað til Neytendastofu vegna auglýsingaherferðar sem ber saman innflutt og innlent grænmeti. Framkvæmdastjóri félags garðyrkjumanna segir herferðina hafa átt að vera skemmtilega. "Ekki allir sem hafa húmor fyrir þessu.“ 15. júní 2018 06:00