Síðustu þrír Hafnarfjarðarslagir í Kaplakrika hafa unnist með einu marki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2018 16:30 Ásbjörn Friðriksson er í aðalhlutverki hjá FH-ingum. vísir/daníel
Það má búast við mjög spennandi leik í Kaplakrika í kvöld þegar FH-ingar taka á móti nágrönnum sínum í Haukum í 12. umferð Olís deildar karla í handbolta. Liðin gerðu jafntefli í æsispennandi leik fyrr í vetur og þá hafa leikir liðanna í Kaplakrika undanfarin ár verið gríðarlega spennandi. Síðustu þrír Hafnarfjarðarslagir í Kaplakrika hafa þannig unnist með einu marki, tvisvar á sigurmarki og einu sinni eftir að Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður FH, varði lokaskot Hauka. Leikurinn hefst klukkan 19.30 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst klukkan 19.15 og strax eftir leikinn tekur Seinni bylgjan við eða klukkan 21.15. Frá því að FH komst aftur upp í deild þeirra bestu haustið 2008 hafa átta innbyrðisleikir liðanna unnist með minnsta mun. Sjö af þessum átta leikjum voru spilaðir í Kaplakrika en aðeins einn á Ásvöllum. FH hefur ennfremur sex sinnum unnið Hauka með einu marki á þessu tímabili en Haukar hafa aðeins tvisvar sinnum unnið eins marks sigur á FH í deildarleikjum liðanna á þessum rúma áratug.Síðustu þrír deildarleikir FH og Hauka í Kaplakrika2017-18: FH vann með 1 marki (30-29) - Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði sigurmark FH2016-17: Haukar unnu með 1 marki (30-29) - Guðmundur Árni Ólafsson skoraði sigurmark Hauka2015-16: FH vann með 1 marki (28-27) - Ágúst Elí Björgvinsson, markvörður FH, varði lokaskot HaukaDeildarleikir FH og Hauka frá 2008 sem hafa unnið með minnsta mun 2017-18: FH vann með 1 marki í Kaplakrika (30-29) 2016-17: Haukar unnu með 1 marki í Kaplakrika (30-29) 2015-16: FH vann með 1 marki í Kaplakrika (28-27) 2014-15: FH vann 1 marks sigur í Kaplakrika (25-25) 2012-13: FH vann 1 marks sigur á Ásvöllum (22-21) 2010-11: FH vann 1 marks sigur í Kaplakrika (24-23) 2009-10: Haukar unnu 1 marks sigur í Kaplakrika (25-24) 2008-09: FH vann 1 marks sigur í Kaplakrika (29-28)- Öll þrjú jafntefli liðanna hafa litið dagsins ljós á Ásvöllum
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira