Kolbeinn með mark í þremur landsleikjum í röð í byrjunarliði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. nóvember 2018 14:00 Kolbeinn Sigþórsson. Vísir/Getty
Það er nánast að treysta á mark frá Kolbeini Sigþórssyni þegar hann byrjar leik með íslenska knattspyrnulandsliðinu. Kolbeinn Sigþórsson var í byrjunarliði íslenska landsliðsins í 2-2 jafntefli í vináttulandsleik á móti Katar í gær en þetta var fyrsta mark hans með íslenska landsliðinu í 591 dag eða síðan 3. júlí 2016. Það fylgir hinsvegar sögunni að Kolbeinn hafði heldur ekki byrjað landsleik síðan þá eða í meira en tvö ár. Það sem meira er að Kolbeinn hafði skorað í tveimur síðustu byrjunarliðsleikjum sínum með landsliðinu sem báðir voru á Evrópumótinu í Frakklandi sumarið 2016. Kolbeinn skoraði sigurmarkið á móti Englandi í 16 liða úrslitum EM í Nice 27. júní og minnkaði síðan muninn í 5-2 tapi á móti Frökkum í átta liða úrslitunum í París 3. júlí. Kolbeinn meiddist eftir EM og lék ekki með landsliðinu fyrr en 11. september 2018. Kolbeinn kom þá inná sem varamaður á móti Belgum í Þjóðadeildinni. Hann kom líka inná sem varamaður í vináttuleik á móti Frökkum í október og á móti Belgum í Þjóðadeildinni á föstudaginn var. Það var ekki að spyrja að því að Kolbeinn myndi skora þegar hann fékk aftur á byrja inná. Hann hefur nú skorað í þremur byrjunarliðsleikjum í röð. Kolbeinn hefur mest náð að skora í fimm byrjunarliðsleikjum í röð en því náði hann árið 2013. Hann hefur nú skorað 23 mörk fyrir íslenska landsliðið og það í aðeins 48 leikjum. Kolbeini vantar nú aðeins þrjú mörk til að jafna markamet Eiðs Smára Guðjohnsen. Eiður Smári skoraði 26 mörk í 88 landsleikjum. Kolbeinn hefur verið í byrjunarliði í 41 landsleik og komið inná sem varamaður í sjö leikjum. 21 af 23 mörkum sínum hefur hann skorað í byrjunarliðsleikjum sínum. Nú er bara að vona að Kolbeinn finni sér aftur félagslið sem vill nota hann og að íslensku landsliðsþjálfararnir geti þar með með góðri samvisku valið hann aftur í landsliðið.
EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Haukur náði hundrað og hundrað fyrir EM Handbolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Skoraði og fékk gult fyrir að benda Fótbolti Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Fleiri fréttir Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Svakalegur derby-dagur fyrir Tómas Bent og félaga Sjáðu dönsku þrumuna sem færði United-mönnum öll þrjú stigin Segir að Arsenal stefni á sögulega fernu á þessu tímabili Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Sjá meira