Höfnuðu því að svissnesk lög yrðu æðri alþjóðalögum Atli Ísleifsson skrifar 25. nóvember 2018 14:52 Svissneska höfuðborginni Bern. Getty/Domenico Dusina/EyeEm
Meirihluti svissneskra kjósenda hafnaði í dag að svissnesk landslög skyldu vera æðri alþjóðalögum og alþjóðasamningum. Um 67 prósent kjósenda greiddu atkvæði gegn tillögunni í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór í dag. Andstæðingar málsins sögðu að það myndi skaða stöðu Sviss á alþjóðavettvangi ef tillagan hefði verið samþykkt. Hefði verið ljóst að endursemja hefði þurft þúsundir þeirra alþjóðasamninga sem svissnesk stjórnvöld hafa gert. Niðurstaðan er talin mikið áfall fyrir stærsta stjórnmálaflokk landsins, Svissneska þjóðarflokkinn (SVP), sem barðist fyrir því að málið yrði sett í dóm svissnesku þjóðarinnar. Tillagan mætti mikilli andstöðu meðal flestra stjórnmálaflokka í Sviss, fulltrúa viðskiptalífsins og mannréttindasamtaka og má vera ljóst að samskipti Sviss við ESB og Sameinuðu þjóðanna hefði skaðast, hefði tillagan verið samþykkt. Svisslendingar eru þekktir fyrir tíðar þjóðaratkvæðagreiðslur, þar sem greidd eru atkvæði um ólík málefni. Þannig var tillögu hafnað í dag sem gekk út á að stjórnvöld myndu styrkja bændur sem létu það vera að skera horn af kúm. 54 prósent höfnuðu tillögunni, en 46 prósent voru henni fylgjandi.
Evrópa Evrópusambandið Sameinuðu þjóðirnar Sviss Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Fleiri fréttir Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Sjá meira