Allt í hnút í riðli Liverpool | Öll úrslit dagsins Anton Ingi Leifsson skrifar 6. nóvember 2018 22:00 Neymar í baráttunni á Ítalíu í kvöld. vísir/getty
Það er allt í hnút í C-riðlinum í Meistaradeild Evrópu en í riðlinum eru Liverpool, PSG, Napoli og Rauða stjarnan. Tvær umferðir eru eftir af riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Liverpool tapaði fyrr í dag mikilvægum stigum er liðið tapaði 2-0 fyrir Rauðu stjörnunni á útivelli og í kvöld gerðu svo Napoli og PSG 1-1 jafntefli á Ítalíu. Juan Bernat kom PSG yfir undir lok fyrri hálfleiks en á 63. mínútu jafnaði Lorenzo Insigne af vítapunktinum eftir að Gianluigi Buffon braut á Jose Maria Callejon. Eftir fjórðu umferðina er Liverpool á toppnum með sex stig, Napoli er í öðru sætinu með sex stig, PSG er í þriðja sætinu með fimm stig og Rauða stjarnan í fjórða sætinu með fjögur stig. Rosaleg spenna. Atletico Madrid náði að hefna ófaranna gegn Dortmund en Madrídingar voru flengdir í Þýskalandi fyrir tveimur vikum er Dortmund vann 4-0. Í kvöld vann Atletico 2-0 sigur í leik liðanna. Saul Niguez og Antoine Griezmann skoruðu mörk Atletico en liðin eru komin langleiðina í 16-liða úrslitin. Þau eru bæði með níu stig, Club Brugge er með fjögur og Mónakó eitt. Í D-riðlinum vann Porto 4-1 sigur á Lokamotiv Moskva í rigningunni í Portúgal og í Þýskalandi vann Schalke 2-0 sigur á tyrkneska liðinu Galatasaray. Porto er með tíu stig, Schalke átta, Galatasaray fjögur en Lokomotiv ekkert.Úrslit dagsins:A-riðill: Mónakó - Club Brugge 0-4 Atletico Madrid - Dortmund 2-0B-riðill: Inter - Barcelona 1-1 Tottenham - PSV 2-1C-riðill: Rauða stjarnan - Liverpool 2-0 Napoli - PSG 1-1D-riðill: Porto - Lokamotiv Moskva 4-1 Schalke - Galatasaray 2-0
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Gray hetja Tottenham Enski boltinn Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Mahrez tryggði Alsíringum sigur Gray hetja Tottenham Højlund með tvö og Napoli í annað sætið Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Gömlu Chelsea-mennirnir skutu Milan á toppinn Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Sjá meira