Kaj Leo genginn í raðir Vals Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. nóvember 2018 16:05 Færeyingurinn er farinn í Val. vísir/eyþór
Kaj Leo í Bartalsstovu er genginn í raðir Vals í Pepsi-deild karla í fótbolta en hann kemur til Hlíðarendafélagsins frá ÍBV. Frá þessu er greint á Facebook-síðu Valsmanna en færeyski vængmaðurinn skrifaði undir þriggja ára samning við Íslandsmeistara Vals. Hann kom fyrst til lands til þess að spila með FH en gekk í raðir ÍBV fyrir sumarið 2017 þar sem að hann er búinn að spila undanfarin tvö sumur. Kaj Leo á að baki fimm mörk í 47 leikjum í Pepsi-deild karla en hann skoraði tvö mörk í 22 leikjum á síðustu leiktíð. Hann hefur skorað öll mörkin sín í efstu deild fyrir ÍBV. Færeyingurinn var aftur á móti stoðsendingahæsti leikmaður deildarinnar í sumar með níu stoðsendingar í 22 leikjum. Hann lagði upp einu marki meira en nú samherji hans, Kristinn Freyr Sigurðsson. Þá átti hann sjöttu flestu lykilsendingarnar (52) og kom flestum sendingum (261) inn í vítateig andstæðinganna. Hann ætti að smellpessa inn í sókndjarft lið Vals sem er nú þegar búið að bæta við sig öðrum öflugum kantmanni í Birni Snæ Ingasyni sem kom til Vals frá Fjölni á dögunum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Fótbolti Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Golf Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira