Seinni bylgjan um Elvar: Orðinn fullþroska leikmaður sem er unun að horfa á Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 23. október 2018 10:00 Selfyssingurinn átti frábæran leik á laugardag S2 Sport
Elvar Örn Jónsson fór á kostum þegar Selfoss hafði betur gegn FH í Olísdeild karla í handbolta um helgina. Sérfræðingar Seinni bylgjunnar á Stöð 2 Sport fóru fögrum orðum um Selfyssinginn í gær. Elvar var með átta mörk úr níu skotum, átti fimm stoðsendingar í sjö sköpuðum færum í leiknum sem Selfoss vann 27-30 „Það verður ekkert skafið af því að leikmaðurinn er orðinn bara A-landsliðsmaður, fullþroska í vörn, sókn, taka af skarið, það er unun að horfa á þennan leikmann,“ sagði Logi Geirsson um Elvar. „Hann er alltaf tilbúinn að stíga upp, eins og fleiri í þessu liði. Við erum búnir að horfa á hann spila landsleiki á móti sterkum þjóðum og þeir eiga í erfiðleikum með hann þar líka.“ „Sjálfstraustið í honum er svo rosalega mikið, maður verður aldrei betri heldur en sjálfstraustið. Punktur. Hjá honum, það er í botni. Það er hundrað prósent,“ sagði Logi. Gunnar Berg Viktorsson tók undir það. „Hann er líka búinn að bæta sig og það er svo gaman að fylgjast með því.“ „Hann bætir sig í hverjum leiknum, lenti í smá meiðslum í fyrra og þurfti aðeins að koma til baka en núna bara tikkar hann inn og tikkar inn. Þetta er framtíðarmaður og rosa gaman að sjá hann í þessum leik, hvernig hann kláraði leikinn,“ sagði Gunnar Berg. Selfoss er eina liðið sem er taplaust í deildinni eftir sex umferðir ásamt því að vera eina íslenska liðið eftir í Evrópukeppni. Sérfræðingarnir ræddu einnig gengi Selfyssinga og þjálfun Patreks Jóhannessonar, umræðuna alla má sjá hér að neðan.
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira