Blandað lið unglinga í úrslit á EM Ástrós Ýr Eggertsdóttir í Lissabon skrifar 17. október 2018 18:30 mynd/kristinn arason Blandað lið unglinga er komið í úrslit á EM í hópfimleikum. Liðið lenti í 4. sæti í undankeppninni. Tíu lið hófu keppni en sex komust áfram í úrslitin. Snemma var ljóst að danska og sænska liðið voru skrefinu á undan keppinautum sínum. Portúgalir, Aserar og Þjóðverjar voru svo áberandi lökust og vermdu botnsætin. Íslenska liðið stóð sig mjög vel og komst þokkalega í gegnum æfingarnar sínar. Liðið fékk tvö föll á dýnunni og í einni lendingunni á trampólíninu þurfti að styðja höndum í lendingardýnuna. Dansinn var glæsilegur og vel kláraður. Íslendingar ættu vel að geta barist um bronsverðlaunin í úrslitunum á föstudag og jafnvel fengið annan lit á verðlaunapeninginn ef allt fer á besta veg. Upptöku frá keppninni má sjá hér að neðan sem og beina textalýsingu fréttamanns frá keppninni.Liðin sem fara í úrslit: Danmörk Svíþjóð Bretland Ísland Noregur Holland
Blandað lið unglinga er komið í úrslit á EM í hópfimleikum. Liðið lenti í 4. sæti í undankeppninni. Tíu lið hófu keppni en sex komust áfram í úrslitin. Snemma var ljóst að danska og sænska liðið voru skrefinu á undan keppinautum sínum. Portúgalir, Aserar og Þjóðverjar voru svo áberandi lökust og vermdu botnsætin. Íslenska liðið stóð sig mjög vel og komst þokkalega í gegnum æfingarnar sínar. Liðið fékk tvö föll á dýnunni og í einni lendingunni á trampólíninu þurfti að styðja höndum í lendingardýnuna. Dansinn var glæsilegur og vel kláraður. Íslendingar ættu vel að geta barist um bronsverðlaunin í úrslitunum á föstudag og jafnvel fengið annan lit á verðlaunapeninginn ef allt fer á besta veg. Upptöku frá keppninni má sjá hér að neðan sem og beina textalýsingu fréttamanns frá keppninni.Liðin sem fara í úrslit: Danmörk Svíþjóð Bretland Ísland Noregur Holland
Fimleikar Mest lesið Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Sport Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Fótbolti Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Handbolti Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Enski boltinn Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Fótbolti „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Enski boltinn Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Fótbolti Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ Enski boltinn Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Sport Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Enski boltinn Fleiri fréttir Maðurinn sem Liverpool leyfði að fara með eitt af mörkum ársins Sonur Dominique Wilkins með vindmyllutroðsluna í blóðinu Yamal hefur þurft að þola tvöfalt meiri rasisma en Vinicius Messi um endurkomu til Barcelona: „Ég vona það einn daginn“ „Algjört bull“ eða „rétt ákvörðun“? Mætti sínu gamla liði í fyrsta sinn og skoraði tvö sjálfsmörk Hjörvar sagði González fá símtal: „Ef það gerist þá verður það frábært“ Samherji verður einn helsti bakhjarl HSÍ Van Dijk við Hjörvar: „Hvað er sérfræðingur?“ Kári og Kristó eru skemmtilegasta kombóið í þessari deild Stelpurnar okkar byrja á erfiðasta glugga sögunnar Lewis Hamilton segist vera fastur í martröð Ætlaði að hætta að velja Eið Smára í landsliðið eftir fýluferð til Englands Bjarni og Guðbjörg endurheimtu bæði Íslandsmeistaratitilinn í CrossFit Rooney og Schmeichel fundu til með Liverpool: „Þetta er slæm ákvörðun“ NBA-goðsögnin Lenny Wilkens látin Eygló Fanndal fékk slæmar fréttir: „Hrædd við komandi mánuði“ Vill halda Heimi og írska liðið lélegt Markvörður með skóflu á lofti í miðjum úrslitaleik Antonelli sló 18 ára gamalt stigamet Lewis Hamilton Tveir leikmenn gætu fengið 65 ára fangelsi Dagskráin í dag: Rólegheit eftir langa helgi Tólf Íslandsmet féllu á Íslandsmótinu í sundi Markaregn í enska boltanum í dag Inter aftur á toppinn eftir sigur á Lazio Sjáðu mörkin og allt það helsta úr meistaraslagnum Norris með aðra höndina á titlinum Þrenna frá Lewandowski og Rashford í stuði Kristall Máni á skotskónum í sigurleik Íslendingarnir atkvæðamiklir í kvöld Sjá meira