Fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands vill verða borgarstjóri Barcelona Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 25. september 2018 22:09 Manuel Valls tilkynnti um framboð sitt í dag. Vísir/getty
Manuel Valls, fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands, vill verða næsti borgarstjóri Barcelona. Hann tilkynnti um framboð sitt í dag og flutti hann ræðuna sína á þremur tungumálum; katalónsku, spænsku og frönsku. Hann hefur að undanförnu dvalið á Spáni. Valls, sem var forsætisráðherra í forsetatíð Francois Holland, fæddist í Barcelona árið 1962 en hefur búið í Frakklandi nær allt sitt líf. Faðir hans er frá Katalóníu en móðir hans er af svissneskum og ítölskum ættum. Þegar blaðamaður Reuters spurði hann hvort það myndi marka endalok ferilsins í stjórnmálum ef hann tapaði í kosningunum sagðist Valls ekki vilja tjá sig um það. Ljóst má vera að það er á brattann að sækja fyrir Valls. Íbúar Evrópusambandsins sem vilja bjóða sig fram til sveitarstjórna í öðru landi en þeir fæddust í verða að mæta ákveðnum skilyrðum. Viðkomandi þarf til að mynda að hafa landvistarleyfi í viðkomandi landi og vera á kjörskrá, svo eitthvað sé nefnt.
Mest lesið Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Erlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Fleiri fréttir Lést er hún fagnaði sigri Frakka Le Pen hvergi af baki dottin og stefnir ótrauð á forsetahöllina Hefur svo gott sem tryggt sér forsætisráðherrastólinn Tólf látnir í skógareldum í suðurhluta Spánar Robinson hafi lýst eftirsjá Þúsundir fylgja æðstaklerkinum til grafar í skugga árása Þurfti að lenda flugvél eftir að kennarinn stökk út og hrapaði til bana Orkuskortur í kjölfar árása: Stjórnvöld í Rússlandi banna útflutning á dísilolíu Árásir á báða bóga og umferð um sundið dregst saman Kornabarn reyndist á lífi í líkhúsi „Ef það gerist aftur mun þetta versna til muna!“ Boðar fleiri árásir Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán Tólf Evrópuríki sögð ætla að smíða nýja langdræga eldflaug Íranir svara fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Trump sló harðan tón við upphaf leiðtogafundar NATO Le Pen staðfestir forsetaframboð Gæti hætt að styðja við Evrópu fái Bandaríkin ekki Grænland Daily Mail hafði betur gegn Harry Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Óvíst með framboð Le Pen eftir tvíræðan dóm Tilræðiskona í Mónakó sögð fundin látin í Úkraínu Þrír á sjúkrahús eftir fyrsta nautahlaup ársins í Pamplona Örlög forsetaframboðs Le Pen gætu ráðist í dag Tóku sýni úr munni móðurinnar og rannsaka mögulegt mannát NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt Sprengja sprakk við hótel Macron í Damaskus Meta hvort hefja eigi réttarhöld yfir meintum morðingja Kirk Sjá meira
Trump fer hamförum í Ankara: Búinn að fá nóg af Írönum, sparkar í Nató og vill hætta öllum viðskiptum við Spán