Fjögur af fimm efstu liðunum í Inkasso-deildinni með sigra Anton Ingi Leifsson skrifar 14. ágúst 2018 19:50 Viktor skoraði þrjú í kvöld. vísir/ernir
Fjögur af fimm efstu liðunum í Inkasso-deild karla unnu öll sína leiki í kvöld en sextánda umferðin kláraðist í kvöld. Nóg af mörkum voru skoruð í kvöld en flest þeirra í Laugardalnum. Skagamenn eru áfram á toppnum eftir 2-0 sigur á Fram á heimavelli. Stefán Teitur Þórðarson skoraði bæði mörkin en Skagamenn eru stigi á undan HK. Fram er í sjötta sætinu. HK vann 2-0 sigur á Leikni í Breiðholtinu með sjálfsmarki og marki Zeiko Lewis. HK er því í öðru sætinu, stigi á eftir ÍA, en Leiknismenn eru í níunda sæti með fimmtán stig, þremur stigum frá fallsæti. Þórsarar sem eru í þriðja sætinu, tveimur stigum á eftir HK og þremur á eftir ÍA, unnu ÍR 4-2 á heimavelli í kvöld. Spánverjarnir Alvaro Montejo og Ignacio Gil skoruðu tvö mörk hver og Jakob Snær Árnason eitt. Þórsarar komust í 4-0 en ÍR klóruðu í bakkann. Már Viðarsson og Axel Sigurðarson minnkuðu muninn áður en Jakob skoraði fimmta markið. ÍR er í áttunda sætinu, fjórum stigum frá fallsæti. Það var boðið upp á markaveislu í Laugardalnum þar sem Þróttarar unnu 5-3 sigur á Magna. Þróttarar komust í 3-0 á fyrstu tólf mínútum leiksins en staðan var svo 4-2 fyrir Þrótt í hálfleik. Ótrúlegur fyrri hálfleikur en eina mark síðari hálfleiks skoraði VIktor Jónsson var Þrótt en hann skoraði þrjú mörk í leiknum. Þróttur er í fimmta sætinu, sex stigum frá öðru sætinu, en Magni er á botninum með tólf stig. Úrslit og markaskorarar eru fengnir frá úrslit.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Besta fótboltakona heims lögð inn á sjúkrahús fimm dögum fyrir EM Fótbolti „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fótbolti Gæti fengið fjögurra ára bann fyrir að reyna að fá gult spjald Fótbolti Sjáðu stórkostlegt mark Sveindísar í lokaleiknum fyrir EM Fótbolti Hélt að Arnar væri að djóka í sér: „Maður var í smá sjokki“ Fótbolti „Þvílík vika“ hjá Andreu Sport Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Enski boltinn Stelpurnar unnu Svía Fótbolti Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Körfubolti Stelpurnar okkar dönsuðu af gleði inn í klefa eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsti sigur Fylkismanna í fimmtíu daga Sjáðu markaveislu Valsmanna og varamannaþrennu Kristófers bjarga Blikum Hetja Blika í kvöld lá í viku inn á spítala í janúar með blóðsýkingu Svarar ekki Óskari Hrafni: „Ég tala bara úti á velli, ekki eftir á“ ÍR-ingar gefa ekkert eftir og tóku toppsætið aftur af Njarðvík Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 1-4 | Kristófer með þrennu á móti uppeldisfélaginu Uppgjörið: KA-Valur 2-5 | Valsmenn með annan stórsigurinn í röð Önnur góð Reykjavíkurferð hjá Þórsurum Obbekjær hentaði Blikum ekki og fer aftur til Færeyja Gæti orðið dýrastur í sögu KR Stjarnan staðfestir komu Caulker Þóra um hártogið í Bestu: „Þetta er bara botnhegðun“ Komin með hundrað meistaraflokksleiki fyrir nítján ára afmælið sitt John Andrews um uppsögnina: „Kom mér mjög á óvart“ KR-ingar í Melabúðinni um stöðu liðsins: „Verða að gyrða sig í brók“ Höskuldur fékk tveggja leikja bann eftir ofsalega framkomu Furðar sig á fjarveru Lárusar Orra: „Finnst þetta skrítið“ John Andrews og Björn reknir Óskar láti gagnrýnisraddir úr Vesturbæ sem vind um eyru þjóta Fóru yfir lætin í Kópavogi: „Höskuldur tryllist strax frá byrjun“ Sjáðu mörkin úr Bestu: Valur rústaði KR og tvö rauð fóru á loft í Kópavogi Sjáðu slagsmálin eftir jöfnunarmark Blika Uppgjörið: Valur-KR 6-1 | Valsmenn rassskelltu KR-inga Uppgjörið: ÍBV-Afturelding 1-2 | Tvö mörk á tveimur mínútum tryggðu sögulegan sigur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 1-1 | Dramatík í Kópavogi Aldrei séð föður sinn jafn glaðan og sáttan í einu og sama verkefninu Sjáðu mörkin úr Bestu þar sem Gylfi Þór fór mikinn og glæsimark var skorað „Gæðin í liðinu munu alltaf skora mörk“ Uppgjör: ÍA-Stjarnan 0-3 | Stjarnan upp í þriðja sætið eftir sigur á botnliðinu Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi maðurinn á bak við sigur Víkinga Sjá meira