Sergio Marchionne látinn Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. júlí 2018 15:45 Sergio Marchionne lét það verða sitt fyrsta verk eftir samruna Fiat og Chrysler að færa skrifstofu forstjóra Chrysler í Detroit niður á gólf hjá hönnuðum og verkfræðingum fyrirtækisins. Vísir/EPA
Goðsögn úr bílaiðnaðinum sem keyrði í gegn samruna Fiat og Chrysler eftir gjaldþrot Chrysler árið 2009 lést Zurich í Sviss eftir að hafa glímt við fylgikvilla skurðaðgerðar. Marchionne, sem var 66 ára, var sagður harðsnúinn samningamaður, eljusamur og hnífskarpur. Eftir samruna Fiat og Chrysler varð til sjöundi stærsti bílaframleiðandi heims en samruninn bjargaði í raun báðum fyrirtækjunum. Eftir það deildi Marchionne tíma sínum jafnt milli Detroit og Tórínó. Hann var mikill áhugamaður um póker og samstarfsmenn hans hafa greint frá svefnlausum flugferðum í einkaþotu yfir Atlantshafið þar sem Marchionne keðjureykti yfir pókerspili. Marchionne, sem var með háskólagráður í bæði heimspeki og lögfræði, lét það verða sitt fyrsta verk eftur samrunann að endurskipuleggja starfsemi Chrysler í Detroit frá grunni og lét færa skrifstofu forstjórans niður á gólfið til verkfræðinganna og bílahönnuðanna. Um þetta var fjallað í fréttaskýringu 60 Minutes árið 2012. Tífaldaði verðmæti Fiat Undir stjórn Marchionne tífaldaðist verðmæti Fiat Chrysler og þá komst Ferrari, eitt af dóttufélögum fyrirtækisins, aftur í fremstu röð Formúlu-kappakstursins undir hans stjórn. Marchionne fór í aðgerð á hægri öxl í síðasta mánuði. Hann hafði verið að jafna sig eftir aðgerðina á sjúkrahúsi. Agnelli fjölskyldan, sem á Fiat Chrysler, upplýsti svo um síðustu helgi að Marchionne myndi ekki snúa til baka til fyrri starfa vegna fylgikvilla sem hann glímdi við eftir skurðaðgerðina. Hann lést síðan í gær en engar nánari upplýsingar um ástæður andlátsins hafa verið veittar. Umfjöllun CBS News um andlát Sergio Marchionne.Umfjöllun FT.
Mest lesið Vill lýsa yfir vantrausti á stjórnarmann vegna sautján ára tölvubréfs Viðskipti innlent Einungis áfengi í boði hjá Heimkaupum Viðskipti innlent Fjórir sérfræðingar skoða möguleika Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent „Þetta eru mjög mikil vonbrigði fyrir okkur“ Viðskipti innlent Bjarni Ingimar ráðinn rekstrarstjóri Avia Viðskipti innlent Húsið selt á 78 milljónir og Jakub þarf að reiða fram milljón Viðskipti innlent Tekjur Haga jukust á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Gjaldþrotin námu 1,2 milljörðum króna Viðskipti innlent Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf Framkvæmdastjóri í góðri æfingu með brandara og hrekki Atvinnulíf Fleiri fréttir Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf
Bankastjóri Íslandsbanka: „Ég samdi við Brynju strax á fyrsta alvöru stefnumótinu...“ Atvinnulíf