Íslensku liðin spila Evrópuleiki samfellt frá fjögur til tíu í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júlí 2018 14:45 Gunnar Heiðar Þorvaldsson tryggði ÍBV bikarinn í fyrra og þar með sæti í Evrópukeppninni. Vísir/Hafliði Breiðfjörð
Þrjú íslensk félög spila Evrópuleiki í dag þar af eru tvö þeirra á heimavelli. Liðin eru FH, ÍBV og Stjarnan og leikir þeirra fara allir fram á sitthvorum tíma. FH-ingar byrja út í Finnlandi á móti FC Lahti klukkan 16.00 að íslenskum tíma. Þá er komið að ÍBV á heimavelli á móti norska félaginu Sarpsborg 08 klukkan 18.00 og loks taka Stjörnumenn á móti Nömme Kalju frá Eistlandi klukkan 20.00. Allir leikirnir eru fyrri leikir liðanna í fyrstu umferð í forkeppni Evrópudeildarinnar. Þetta þýðir jafnframt að íslensk félög eru að spila Evrópuleiki samfellt frá fjögur til tíu í kvöld eða sex tíma í röð. Sannkallað íslenskt Evrópukvöld í fótboltanum. Valur reið á vaðið í gær þegar liðið vann glæsilegan 1-0 sigur á Noregsmeisturum Rosenborg í forkeppni Meistaradeildarinnar. Það boðar vonandi gott fyrir þetta Evrópusumar hjá íslensku liðunum. Það væri ekki slæmt ef Eyjamenn sæju til þess að íslenskt lið myndi vinna Norðmenn tvö kvöld í röð. Leikur ÍBV verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Slái FH-ingar út lið FC Lahti þá mætir Hafnarfjarðarliðið liði Hapoel Haifa frá Ísrael. Slái Eyjamenn út lið Sarpsborg 08 þá mætir Eyjaliðið liði St. Gallen frá Sviss. Slái Stjörnumenn út lið Nömme Kalju þá mætir Garðabæjarliðið sigurvegaranum úr leikjum KuPS frá Finnlandi og FCK frá Danmörku.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Leikið um Ofurskálina í sextugasta sinn: Augu heimsins á Super Bowl Sport „Hún hegðar sér eins og díva“ Sport Trump kallar keppanda Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum „algjöran lúser“ Sport Lindsey Vonn fótbrotnaði við fallið Sport Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega Enski boltinn Öll stúkan söng um Orra eftir markið hans Fótbolti Drama í skíðagöngu Dags: Stytti sér leið en fékk samt silfur Sport „Gagnrýnin og viðbjóðurinn aldrei verið meiri“ Handbolti Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Enski boltinn Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýi leikmaður Liverpool meiddist alvarlega Real Madrid fylgir Barcelona eftir eins og skugginn Öll stúkan söng um Orra eftir markið hans Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt „Enn og aftur dæmir dómarinn ekki okkur í vil“ „Við urðum að vinna, annars væri titilbaráttan búin“ Luis Diaz með þrennu á móti tíu mönnum Hoffenheim Manchester City kom til baka eftir stórskostlegt mark Szoboszlai Viktori tókst ekki að skora á Elías Cecilía hélt hreinu í Íslendingaslagnum á Ítalíu Ísak lagði upp mark í svekkjandi tapi Sarr tryggði sigur gegn Mávunum Emilía skoraði á mikilvægri stundu Stefán Teitur skoraði sitt fyrsta mark fyrir Hannover Sjáðu fjórða sigur United, þrennu Palmer og tvennu Gyökeres Mætast undir allt öðrum kringumstæðum en áður Farinn að leita að rakara og vill fá tíma 10. febrúar Orri aftur með draumainnkomu Albert meiddist og Fiorentina missti frá sér sigurinn Kristian Nökkvi á skotskónum í Hollandi Brentford upp að hlið Liverpool eftir endurkomusigur á Newcastle Mikel Arteta segir að níu stiga forysta Arsenal þýði „ekkert“ Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Börsungar gefa ekkert eftir á toppnum Hamrarnir sóttu sigur, Everton sneri leiknum en Villa missti niður forystu Skytturnar með níu stiga forskot á toppnum Palmer með þrennu í fyrri hálfleik gegn Úlfunum Fær fjögurra leikja bann og missir af Lundúnaslagnum United fagnaði fjórða sigrinum í röð Sjáðu mörkin sem Sean Dyche fannst alveg skelfileg Sjá meira