Segist hafa þurft að heilla mannræningjann upp úr skónum til að sleppa Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. júlí 2018 10:45 Chloe Ayling, tvítug fyrirsæta, var numin á brott í Mílanó og haldið í gíslingu í sex daga. Skjáskot/Instagram
Breska fyrirsætan Chloe Ayling, sem rænt var í Mílanó á Ítalíu og haldið í gíslingu í sex daga á síðasta ári, segir að hún hafi reynt hvað hún gat til þess að láta mannræningjann falla fyrir sér svo hún gæti sloppið úr prísundinni. Mannránið vakti mikla athygli á síðasta ári en ræninginn, Lukasz Herba, lokkaði Ayling til Mílanó undir því yfirskyni að hann væri ljósmyndari. Í stað þess að taka af henni myndir sprautaði Herba hana með deyfilyfinu ketamín og rændi henni. Ayling var meðal annars handjárnuð við kommóðu í svefnherbergi húss í bænum Borgial skammt frá Tórínó þar. Herba var nýverið dæmdur í 16 ára og 9 mánaða fangelsi fyrir mannrán og tilraun til fjárkúgunar.Samþykkti að deila rúmi með ræningjanumÍ viðtali við BBC lýsir Ayling samskiptum þeirra Herba á meðan hann hélt henni fanginni. Segir Ayling að fyrstu tvo dagana hafi hún verið handjárnuð við kommóðu en að hún hafi losnað við handjárnin eftir að hafa samþykkt að deila rúmi með Herba. „Því meira sem við töluðum saman, því meiri tengsl fann ég myndast. Þegar ég áttaði mig á því að hann var farinn að kunna vel við mig vissi ég að ég þyrfti að nýta mér það,“ sagði Ayling í viðtali við BBC.Lukasz Herba virðist hafa verið heltekinn af Ayling.Vísir/EPASegir Ayling að hún hafi fyllst hryllingi þegar þau komu í húsið þar sem Herba hélt henni fanginni, eftir að hafa ekið um 200 kílómetra frá Mílanó. Fékk Ayling að dúsa í ferðatösku í skottinu á bíl Herba þangað til komið var að húsinu. Þegar inn var komið sagðist Herba ætla að selja hana í kynlífsþrælkun nema hann fengi 300 þúsund evrur, um 40 milljónir króna. „Ég trúði öllu sem hann var að segja og efaðist ekki um fyrirætlanir hans í eina sekúndu vegna þess að hann gaf mér svo nákvæm svör við öllum spurningunum sem ég spurði hann,“ sagði Ayling. Þegar Herba fór hins vegar að spyrja hvort hann mætti kyssa hana og hvort þau gætu átt í sambandi nýtti Ayling tækifærið. „Þegar ég sá viðbrögð hans við því þegar ég var að tala um að eitthvað gæti gerst á milli okkar í framtíðinni, hann varð spenntur og var alltaf að tala um það, þá áttaði ég mig á því að ég þyrfti að halda því áfram,“ sagði Ayling.Sáust hlæjandi saman á kaffihúsi í Mílanó Eftir að Herba áttaði sig á því að hann myndi aldrei fá lausnargjaldið greitt ákvað hann að sleppa henni og ók hann Ayling að skrifstofu ræðismanns Breta í Mílanó. Vitni hafa greint frá því að hafa séð þau hlæjandi saman á kaffihúsi á meðan þau biðu eftir að skrifstofan opnaði og hefur það meðal annars leitt til þess að sumir í Bretlandi efist um sögu Ayling. Hún segist hins vegar bara hafa verið að halda leikritinu áfram fyrir Herba svo öruggt yrði að hún myndi sleppa frá honum. „Ég varð að gera allt sem ég gat til þess að láta hann verða ástfanginn af mér,“ sagði Ayling. Sem fyrr segir var Herba dæmdur í fangelsi vegna málsins en í málsvörn hans kom fram að hann hefði hitt Ayling einu sinni áður en hann rændi henni og í það skipti hefði hann orðið ástfanginn af henni. Þá sagði hann að mannránið og fjölmiðlaumfjöllunin í kringum það hefði átt að verka sem innspýting í fyrirsætuferil Ayling. Segist hún enn ekki átta sig á því af hverju Herba hafi rænt henni. Miðað við það að Herba hafi gerst Facebook-vinur hennar fyrir tveimur árum telur hún líklegt að hann hafi verið heltekinn af henni.
Tengdar fréttir Ræninginn dæmdur í 17 ára fangelsi Breska fyrirsætan Chloe Ayling, sem var rænt í fyrrasumar, er hæstánægð með nær 17 ára fangelsisdóm sem ræningi hennar hlaut í dag. 11. júní 2018 22:54 Komin heim eftir að mannræningjar reyndu að selja hana á uppboði Hin tvítuga Chloe Ayling var stödd í Mílanó vegna myndatöku. Tveir menn eru sagðir hafa ráðist á hana þann 11. júlí síðastliðinn, byrlað henni ólyfjan og rænt henni. 6. ágúst 2017 19:35 Mest lesið Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Ótrúleg eftirför: „Lyginni líkast að sjá það á fullri ferð úti á ballarhafi“ Innlent Alelda bíll í Reykjanesbæ Innlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Bein útsending frá Sundahöfn: Hvað verður um áhöfn Bandero? Innlent Paul Watson afar ánægður með handtökuna Innlent Fleiri fréttir Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Sjá meira
Ræninginn dæmdur í 17 ára fangelsi Breska fyrirsætan Chloe Ayling, sem var rænt í fyrrasumar, er hæstánægð með nær 17 ára fangelsisdóm sem ræningi hennar hlaut í dag. 11. júní 2018 22:54
Komin heim eftir að mannræningjar reyndu að selja hana á uppboði Hin tvítuga Chloe Ayling var stödd í Mílanó vegna myndatöku. Tveir menn eru sagðir hafa ráðist á hana þann 11. júlí síðastliðinn, byrlað henni ólyfjan og rænt henni. 6. ágúst 2017 19:35