Chrissy Teigen svarar fyrir sig Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 9. júlí 2018 18:13 Ýmsir netverjar hafa haft sig í frammi og sent hinni nýbökuðu móður orsendingu þess efnis að ljósmyndin sé ekki við hæfi og að hún ætti að hylja sig. Chrissy Teigen Instagram
Ljósmynd af leikkonunni og fyrirsætunni Chrissy Teigen að gefa barninu sínu og brúðu dóttur sinnar brjóst hefur ekki aðeins vakið jákvæða athygli heldur líka neikvæða. Teigen setti ljósmyndina inn á Instagram og Twitter með skrifaði „Luna lætur mig líka gefa dúkkunni sinni brjóst. Ég held að ég eigi tvíbura núna.“ Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa í netheimum og á aðeins einum degi hafa tæplega þrjár milljónir „líkað við“ myndina og 18.000 manns gert slíkt hið sama á Twitter. Ýmsir netverjar hafa haft sig í frammi og sent hinni nýbökuðu móður orsendingu þess efnis að ljósmyndin sé ekki við hæfi og að hún ætti að hylja sig.Chrissy Teigen og John Legend eignuðust Miles í maí á þessu ári. Fyrir eiga þau dótturina Lunu.Þessi ummæli og önnur sem voru á svipuðum nótum hefur greinilega komið illa við Teigen því hún ákvað að svara gagnrýninni fyrir sína hönd og annarra mæðra í sömu sporum. Hún segir að það sé annarra manna vandamál að ljósmyndin hafi orðið að einhverju stórmáli, fólk verði bara að eiga það við sig. Það ætti ekki að vera neitt stórmál að gefa barninu sínu að borða. Notandi á Twitter svaraði um hæl og sagði að þrátt fyrir að allt væri eðlilegt við barnsfæðingar, blæðingar og brjóstagjöf þýði það þó ekki að hún vilji sjá ljósmyndir af því. Teigen sagði þá: „Mig langar hvorki til þess að sjá kornóttar ljósmyndir af flugeldum né sjálfumyndir af Coahella. Þá hef ég engan áhuga á því að sjá ljósmyndir af sundlaugum en ég leyfi fólki samt að lifa.“ Margir netverjar hafa sýnt stuðning sinn við Teigen í verki með því að hrósa henni fyrir ljósmyndina og nota myllumerkið #normalizebreastfeeding.
Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Sjá meira