Annar Færeyingur til KA en Fram missir sinn besta mann Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. maí 2018 11:20 Allan Norðberg er kominn til KA. mynd/KA
Handboltalið KA sem vann sér sæti í Olís-deild karla í vetur er byrjað að styrkja sig fyrir átökin á meðal þeirra bestu á næstu leiktíð. KA-menn eru búnir að ganga frá samningi við færeyska landsliðsmanninn Allan Norðberg sem kemur frá StÍF en hann er hægri hornamaður og var valinn í lið ársins í Færeyjum á síðustu leiktíð þar í landi. Norðanmenn voru án rétthents hornamanns á síðustu leiktíð en eru nú búnir að fylla í það skarð. Norðberg var markahæsti hægri hornamaður færeysku deildarinnar í vetur. Hjá KA hittir hann félaga sinn í landsliðinu Áka Egilsnes sem gekk í raðir KA fyrir síðustu leiktíð og varð markahæsti leikmaður liðsins í vetur. Á meðan KA er að styrkja sig með landsliðsmanni er Fram að missa sinn allra besta leikmann en fram kemur á danska miðlinum Jydske Vestkysten að Arnar Birkir Hálfdánsson, hægri skytta Framara, sé á leið til SöndrejyskE. Arnar Birkir skoraði 116 mörk fyrir Fram í Olís-deildinni í vetur eða 5,3 mörk að meðaltali í leik auk þess sem að hann gaf 4,6 stoðsendingar og var með 2,7 löglegar stöðvanir að meðaltali í leik. Þetta er mikill missir fyrir Fram-liðið sem var í fallbaráttu nær allt tímabilið en komst þó í úrslitaleik bikarsins þar sem að það tapaði fyrir ÍBV.
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira