FH-ingar halda áfram að missa lykilmenn Tómas Þór Þórðarson skrifar 4. maí 2018 10:30 Ísak Rafnsson er frábær varnar- og sóknarmaður. vísir/stefán
Lið FH í Olís-deild karla í handbolta virðist vera að missa annan lykilmann fyrir næstu leiktíð en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er Ísak Rafnsson á leið til austurríska liðsins Scwaz Handball Tirol. Ísak er algjör lykilmaður í varnarleik FH-inga sem höfnuðu í þriðja sæti Olís-deildarinnar og eru nú 2-1 undir í undanúrslitarimmu sinni á móti Selfossi. Fjórði leikurinn fer fram á morgun klukkan 19.30 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 HD. Fyrir utan að vera einn albesti varnarmaður deildarinnar er Ísak frábær skytta. Hann skoraði tíu mörk í tíu skotum í fyrsta leik tímabilsins á móti Fram og fékk tíu í einkunn á HB Statz fyrir frammistöðu sína. Glugginn virðist vera að lokast á FH að verða Íslandsmeistari með þetta frábæra lið sem Halldór Jóhann Sigfússon þjálfar því ef rétt reynist eru þrír lykilmenn á förum frá Hafnafjarðarliðinu í sumar. Gísli Þorgeir Kristjánsson er nú þegar búinn að semja við þýska stórliðið Kiel og Óðinn Þór Ríkharðsson er á leið til GOG á Fjóni í dönsku úrvalsdeildinni.
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira