Atli Már handarbrotinn og verður ekki meira með Haukum Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. apríl 2018 10:58 Atli Már hefur verið frábær fyrir Hauka. vísir/anton
Haukar hafa orðið fyrir miklu áfalli í úrslitakeppni Olís-deildar karla í handbolta en einn besti leikmaður liðsins í vetur, Atli Már Báruson, er handarbrotinn og verður ekki meira með. Atli varð fyrir meiðslunum á æfingum fyrir fyrsta leikinn gegn ÍBV í undanúrslitum Íslandsmótsins í gær sem Haukarnir töpuðu á útivelli, 22-20. Haukar reyndu allt til að láta Atla spila en hann gat lítið beitt sér vegna meiðslanna. Atli kom til Hauka frá Val fyrir tímabilið og skoraði 3,2 mörk að meðaltali í leik í deildinni, gaf 3,3 stoðsendingar og var með 3,7 löglegar stöðvanir í Olís-deildinni í vetur. Hann hefur verið algjör lykilmaður í Haukaliðinu og var frábær í fyrri leiknum á móti Val í átta liða úrslitunum. Þrátt fyrir að vera rétthentur hefur Atli Már spilað mest hægra megin í vetur en Árni Þór Sigtryggson var ekki með vegna meiðsla í gær. Haukarnir eru því að missa menn í meiðsli á versta tíma en þeir fá nú átta daga til að undirbúa sig fyrir leik tvö á móti ÍBV.
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira