Heineken bakkar með umdeilda auglýsingu Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. mars 2018 07:06 Barþjónninn sér bjórlausa konu við enda barborðsins og ákveður að renna bjór til hennar. Skjáskot
Bjórframleiðandinn Heineken á í vök að verjast eftir að fjölmargir, þar með talið rapparinn Chance the Rapper, gagnrýndu auglýsingu fyrirtækisins. Auglýsingin, sem sjá má hér neðan, er talin markast af kynþáttafordómum og ákvað bjórframleiðandinn því að réttast væri að kippa henni úr birtingu. Í auglýsingunni má sjá barþjón renna flösku af Heineken Light eftir barborðinu. Flaskan fer fram hjá nokkrum blökkumönnum áður en hún stoppar hjá konu með ljósari húð. Því næst birtist slagorð bjórtegundarinnar, Lighter is better, sem þykir heldur misráðið í samhengi auglýsingarinnar. Slagorðið vísi þannig ekki aðeins til þess að um léttbjór sé að ræða heldur einnig að „ljósara sé betra,“ sem gagnrýnendur telja vísun í húðlit leikaranna. Rappstjarnan Chance the Rapper er meðal gagnrýnenda og sagði hann á Twitter á sunnudag að auglýsingin væri „alveg hræðilega rasísk.“ Hann sagðist einnig velta því fyrir sér hvort fyrirtæki væru meðvitað að stíla inn á kynþáttafordóma til að fá fleiri áhorf á umdeildar auglýsingar sínar. Í yfirlýsingu frá Heineken biðst fyrirtækið afsökunar og segist ekki hafa hitt í mark með þessari auglýsingu. Bjórframleiðandinn hefur þó fengið mikið lof fyrir auglýsingar, til að mynda í fyrra þegar hann fékk hóp fólks úr mismunandi áttum til að ræða upplifanir sínar. Auglýsinguna umdeildu má hins vegar sjá hér að neðan.
Mest lesið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Lífið Fleiri fréttir Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Sjá meira