Aron Dagur puttabrotinn│Óvíst með úrslitakeppnina Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 19. mars 2018 16:23 Aron Dagur Pálsson. Vísir/Andri Marinó
Aron Dagur Pálsson verður ekki með Stjörnunni í loka leik Olís deildar karla þar sem hann gekkst undir aðgerð á fingri í dag. Þetta staðfestir Einar Jónsson, þjálfari Stjörnunnar, í samtali við íþróttadeild. Stjarnan er í 7. sæti Olís deildarinnar fyrir síðustu umferðina og verður að sækja sigur gegn FH ætli þeir sér í sjötta sætið. Þar situr Afturelding en bæði lið eru með 21 stig. Afturelding stendur hins vegar betur að vígi í innbyrðisviðureignum þessara liða og er því fyrir ofan Stjörnuna. Aron Dagur lék ekki með Stjörnunni gegn ÍBV í gærkvöld þar sem hann puttabrotnaði í bikarfríinu. Hann fór eins og áður segir í aðgerð í dag og munu meiðsli Arons vera álíka þeim sem Haukur Þrastarson hlaut fyrr í vetur. Einar sagði möguleika á því að Aron Dagur nái að spila í úrslitakeppninni ef allt gengur að óskum. 8-liða úrslitin hefjast um miðjan apríl og miðað við stöðuna í deildinni í dag myndi Stjarnan mæta Selfyssingum í 8-liða úrslitunum. Aron Dagur er einn af markahæstu mönnum Stjörnuliðsins í vetur, hefur skorað 75 mörk í 16 leikjum og er mikill missir fyrir liðið.
Olís-deild karla Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira