„Gaman að komast í fyrsta sætið“ Telma Tómasson skrifar 2. febrúar 2018 13:15 Jakob Svavar Sigurðsson. Vísir
Jakob Svavar Sigurðsson fór með sigur af hólmi í fjórgangi á stólpahryssunni Júlíu frá Hamarsey í fyrstu keppni í mótaröð Meistaradeildar Cintamani í hestaíþróttum sem fram fór í Samskipahöllinni í Kópavogi í gærkvöldi. Sýning Jakobs Svavars einkenndist af öryggi og góðu flæði. Hann hlaut hæstu einkunnir fyrir greitt tölt í A-úrslitum, en viðkvæmast var fetið í sýningu Jakobs Svavars. Lokaeinkunn Jakobs Svavars var 7.70, en hann er í liði Líflands í Meistaraeild Cintamani. „Þetta var mjög gaman. Ég var engan veginn viss fyrir lokaatriðið, greitt tölt, fannst vera frekar á brattann að sækja, tölurnar rokkuðu þarna upp og niður...Við erum búin að vera í öðru og þriðja sæti áður, við Júlía, þannig að það er gaman að komast í fyrsta sætið,“ sagði Jakob Svavar í viðtali við Fjölni Þorgeirsson að keppni lokinni í gær. Meistaradeildin var í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og má sjá sýningu Jakobs Svavars í forkeppninni í meðfylgjandi mynskeiði.Niðurstöður A-úrslita í fjórgangi í Meistaradeild Cintamani voru eftirfarandi: 1. Jakob Svavar Sigurðsson - Júlía frá Hamarsey - Lífland - 7.70 2. Árni Björn Pálsson - Flaumur frá Sólvangi - Top Reiter - 7.63 3-4. Ásmundur Ernir Snorrason - Frægur frá Strandarhöfði - Auðsholtshjáleiga / Horse export - 7.50 3-4. Elin Holst - Frami frá Ketilsstöðum - Gangmyllan - 7.50 5. Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir - Óskar frá Breiðstöðum - Ganghestar / Margrétarhof / Equitec - 7.17 6. Þórdís Erla Gunnarsdóttir - Sproti frá Enni - Auðsholtshjáleiga / Horse export - 7.07
Hestar Mest lesið Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Enski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Fótbolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Fleiri fréttir Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Síðasti dansinn hjá Kelce? Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Öll höllin æpti nafn Gísla í spennutrylli Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Guðrún Brá og Gunnlaugur Árni slógu best í ár Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Sjá meira