Gerry McGovern hjá Land Rover er hönnuður ársins 6. febrúar 2018 09:25 Gerry McGovern, hönnuður ársins tekur á móti verðlaunum sínum.
Yfirhönnuður Land Rover, Gerry McGovern, var fyrir skömmu heiðraður á alþjóðlegu hönnunarhátíð bílaframleiðenda og hlaut hönnunarverðlaunin „Grand Prix du Design“ sem afhent voru í París. Hann hlaut verðlaunin fyrir framlag sitt og áhrif á þróun hins alþjóðlega bílaiðnaðar og þá ekki síst fyrir nýjan Range Rover Velar sem formaður hátíðarinnar segir að sé framúrskarandi listaverk. Verðlaunin voru ákveðin af dómnefnd fulltrúa fimmtán aðila á sviði bílaiðnðarins, íþrótta, arkitektúrs, tísku, hönnunar, menningarmála og fjölmiðla. Við afhendinguna sagði Rémi Depoix, formaður „Festival Automobile International“ að Gerry McGovern hljóti verðlaunin í ár fyrir „hið undurfallega listaverk sitt, Range Rover Velar, og í raun fyrir starfsferil sinn allan og framlag sitt til greinarinnar. Eitt helsta afrek hans er hvernig tekist hefur að yfirfæra helstu séreinkenni Land Rover yfir á nýjar og breyttar kynslóðir bíla fyrirtækisins, sem birtist fyrst með Range Rover Evoque, og varðveita þau í senn. Breskur bílaiðnaður hefur gengið í endurnýjun lífdaga sinna vegna hugsjónar og framtíðarsýnar Gerry McGovern og á grundvelli stórkostlegrar arfleifðar Land Rover sem bílamerkis,“ sagði Depoix við afhendinguna. Við móttöku þeirra sagði McGovern að verðlaunin væru mikil viðurkenning á mikilvægi hönnunar sem blasi hvarvetna við á öllum sviðum mannlegs lífs. „Við hjá Land Rover vinnum þrotlaust að því að hanna eftirsóttustu bílana á markaðnum, bílana sem viðskiptavinir okkar elska að eilífu.“ Range Rover Velar er fjórða bílgerð Range Rover og sú sem brúar bilið milli Evoque og Range Rover Sport. Frá og með 2020 verða allir nýir bílar Jaguar Land Rover einnig með rafmótor sem tengiltvinnbílar. Range Rover og Range Rover Sport eru nú þegar fáanlegir sem slíkir.
Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Ætla að flytja starfsemi Vogs Innlent Skortir lækna í Breiðholti Innlent