Bankarnir mega reka sameiginlegt seðlaver Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 5. desember 2017 12:39 starfsemi seðlavers felist í megindráttum í því að taka við seðlum og mynt frá útibúum, hraðbönkum og öðrum starfsstöðvum viðskiptabanka og sparisjóða Vísir/Valli
Samkeppniseftirlitið hefur fallist á að veita Landsbankanum, Íslandsbanka og Arion banka undanþágu til stofnunar og reksturs sameiginlegs seðlavers gegn tilteknum skilyrðum. Bankarnir hafa skuldbundið sig til að fara að skilyrðunum sem um ræðir.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu en þar segir að starfsemi seðlavers felist í megindráttum í því að taka við seðlum og mynt frá útibúum, hraðbönkum og öðrum starfsstöðvum viðskiptabanka og sparisjóða, telja og skrá reiðufé, varðveita það, dreifa því til baka til útibúa, hraðbanka og annarra starfsstöðva og koma því, eftir atvikum, til geymslu í Seðlabankanum. Þar segir einnig að meginrökin fyrir stofnun og rekstri sameiginlegs seðlavers felast í því að samrekstur á þessu sviði getur leitt til töluverðs kostnaðarsparnaðar samanborið við að reka hvert seðlaver með aðskildum hætti hjá hverjum banka fyrir sig. Jafnframt gæti sameiginlegt seðlaver verið betur í stakk búið til að uppfylla öryggiskröfur. Í sátt milli bankanna þriggja og Samkeppniseftirlitsins kemur fram að henni sé ætlað að tryggja að sameiginlegt seðlaver verði rekið með sjálfstæðum hætti, tryggja jafnt aðgengi allra bærra aðila að hinu sameiginlega félagi, tryggja að verðlagning félagsins miðist eingöngu við þörfina fyrir að viðhalda starfseminni, vinna gegn því að starfsemi félagsins skerði samkeppni á milli eigenda félagsins, stóru viðskiptabankanna þriggja, á markaði fyrir almenna viðskiptabankaþjónustu og tryggja að sú hagræðing sem leiðir af samrekstrinum viðhaldist til framtíðar.
Mest lesið Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Flestir Trump-tollarnir dæmdir ólöglegir Viðskipti erlent Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Viðskipti innlent Nova kaupir Ofar Viðskipti innlent Allt á uppleið á Grundartanga Viðskipti innlent Einn stofnenda ASOS fannst látinn Viðskipti erlent „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Neytendur Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Viðskipti innlent Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Erla Ósk nýr formaður Jafnvægisvogarráðs Sjá meira