Kári Garðars fær sömu dómara aftur í kvöld og honum fannst ekki eiga heima í deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. nóvember 2017 16:15 Kári Garðarsson, þjálfari Gróttu. Vísir/Stefán
Kári Garðarsson, þjálfari Gróttu, var mjög ósáttur með dómgæsluna í leik Fjölnis og Gróttu í síðustu umferð í Olís deild karla í handbolta. Þjálfari Gróttu lét meðal annars hörð orð falla um frammistöðu Bóasar Barkar Bóassonar og Harðar Aðalsteinssonar í leiknum. Grótta tapaði þá 31-34 á móti Fjölni en allt ætlaði um kolla að keyra á lokamínútum leiksins.Sjá einnig: Kári: Þetta dómarapar á ekki heima í deildinni „Mér fannst þetta vera á köflum algjör sirkus, ég verð að segja það alveg eins og er. Þetta dómarapar á að mínu viti ekki heima í þessari deild og á þessu „leveli“. Það er bara ekki mitt að stjórna dómaramálum á Íslandi, kannski sem betur fer,“ sagði mjög ósáttur Kári í viðtali við Vísi eftir leikinn. Dómaranefnd HSÍ hefur nú ákveðið að Bóas Börkur Bóasson og Hörður Aðalsteinsson munu líka dæma leik Gróttu í kvöld en hinn leikurinn fór fram fyrir aðeins fjórum dögum síðan.Sjá einnig: Seinni bylgjan: Dómararnir byrja að reka út af fyrir allt Grótta heimsækir þá Íslandsmeistara Valsmanna á Hlíðarenda en þetta er einn af fimm leikjum í Olís deild karla í kvöld. Bóas Börkur og Hörður dæmdu líka þegar Grótta tapaði á heimavelli á móti Aftureldingu fyrr í vetur. Þetta verður því þriðji leikurinn sem þeir dæma hjá Gróttu í Olís-deildinni í vetur.Leikur Vals og Gróttu hefst klukkan 19.30 en á sama tíma spila Selfoss og Stjarnan á Selfossi og ÍR tekur á móti Haukum í Austubergi. Leikur ÍBV og Aftureldingar hefst klukkan 18.00 í Eyjum og lokaleikur kvöldsins fer síðan fram í Garfarvogi þar sem Fjölnir tekur á móti Víkingum.
Olís-deild karla Mest lesið Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira