Ódýrara að smíða Camry í Japan en Bandaríkjunum Finnur Thorlacius skrifar 21. nóvember 2017 09:52 Toyota Camry.
Toyota smíðar meirihluta þeirra bíla sem fyrirtækið selur í Bandaríkjunum þar í landi. Til dæmis er stærsta einstaka bílaverksmiðja Toyota í Kentucky í Bandaríkjunum. Það þýðir þó ekki að það borgi sig fyrir Toyota að smíða bíla sína þar því það er ódýrara fyrir Toyota að smíða bíla sína í Japan. Það á til dæmis við bílinn Toyota Camry því ódýrara er að smíða þá í Japan og senda þá síðan með skipum alla leiðina til Bandaríkjanna, en að smíða þá í Kentucky. Toyota Motor Corp. hefur varað starfsfólk í þessari stóru verksmiðju í Kentucky við þessari staðreynd með þeim skilaboðum að ef ekki verði fundin sparnaðarleið til að brúa þetta bil séu störf þeirra í hættu. Semsagt, skerið niður kostnað eða horfið framá óljósa framtíð. Toyota hefur fengið stjórnendur í verksmiðjunni í Kentucky með sér í lið til að vekja athygli á því að dýrara sé að framleiða Toyota bíla í þessari verksmiðju en í Japan til þess að fá alla starfsmenn með sér í lið til að finna leiðir til að skera niður kostnað svo að það borgi sig að framleiða þar áfram Toyota bíla fyrir Bandaríkjamarkað. Myndaðir hafa verið vinnuhópar sem eiga að finna leiðir til að skera niður kostnað í verksmiðjunni í Kentucky og störf starfmanna þar gætu oltið á því að þessar leiðir verði fundnar.
Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Keyrði aftan á strætisvagn Innlent Eldur í Sorpu á Granda Innlent