Stálu áætlunum Bandaríkjahers Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 11. október 2017 06:00 Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu. vísir/afp
Tölvuþrjótar frá Norður-Kóreu brutust inn í gagnabanka varnarmálaráðuneytis Suður-Kóreu og stálu gögnum sem tengjast hernaðaráætlunum bæði Suður-Kóreu og Bandaríkjanna. Rhee Cheol-hee, suðurkóreskur þingmaður, staðfesti innbrotið í gær en Norður-Kórea hefur neitað öllum ásökunum. Ráðuneytið neitaði að tjá sig um árásina í gær en um er að ræða 235 gígabæt af gögnum. Á meðal þess sem stolið var eru áætlanir ef til stríðs kemur á Kóreuskaga, áætlanir um að ráða Kim Jong-un einræðisherra af dögum og samskipti æðstu hershöfðingja Bandaríkjanna og Suður-Kóreu. Árásin var gerð í september á síðasta ári en samkvæmt Yonhap-fréttastofunni í Seúl hafa slíkar árásir verið tíðar. Jafnframt heldur miðillinn því fram að Norður-Kórea njóti aðstoðar vel þjálfaðra hakkara erlendis, meðal annars í Kína. Afskaplega ólíklegt er að þessi tíðindi verði til þess að leysa úr spennunni sem hefur stigmagnast á Kóreuskaga undanfarna mánuði, en Bandaríkjaforseti og einræðisherra Norður-Kóreu hafa kallað hvor annan geðsjúklinga og hótað árásum og gjöreyðingu.
Birtist í Fréttablaðinu Norður-Kórea Mest lesið Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Dró konu eftir gangstétt og lyfti henni svo upp með hálstaki Innlent Tilhæfislaus líkamsárás í annað sinn og enginn kom til aðstoðar Innlent Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Erlent Hrindir af stað söfnun fyrir föður drengsins Innlent Reyndi ítrekað að stofna til slagsmála við skemmtistað Innlent Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Erlent Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Erlent Árekstur á Suðurlandsbraut Innlent Piltur skilinn eftir ber að ofan og skólaus eftir hrottafengna árás Innlent Fleiri fréttir Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér Sjá meira