Fimm fórust á hjúkrunarheimili í Flórída eftir Irmu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 14. september 2017 06:00 Irma olli miklu tjóni. Nordicphotos/AFP
Fimm létust á hjúkrunarheimili í Flórída í gær eftir að fellibylurinn Irma gekk þar yfir. Hjúkrunarheimilið, sem er í Hollywood í Flórída, hefur verið rafmagnslaust dögum saman og var það rýmt í gær enda afar heitt þar inni þar sem loftræsting virkar ekki. Tíu milljónir eru enn án rafmagns í Flórída, Georgíu og Suður- og Norður-Karólínu vegna Irmu en á þriðja tug fórust af völdum stormsins í Bandaríkjunum. Til viðbótar fórust á fjórða tug á eyjum Karíbahafsins vegna hamfaranna. Irma gekk á land í Flórída á sunnudagsmorgun sem fjórða stigs fellibylur. Yfir landi veiktist stormurinn og var Irma orðin hitabeltisstormur á mánudag. Fleiri eldri borgarar eru í hættu í Flórída en rafmagnslaust er í fimmtán þúsund manna samfélagi eldri borgara í Pembroke Pines. Eru sumir íbúanna fastir í herbergjum sínum þar sem lyftur virka ekki. Í gær var 32 stiga hiti í Pembroke Pines og vegna rafmagnsleysisins virkar loftræsting ekki á svæðinu svo hitinn verður hættulegur. Amanda Conwell, talsmaður lögreglu í Pembroke Pines, sagði við Miami Herald í gær að lögregluþjónar vöktuðu nú svæðið. Íbúar væru í viðkvæmri stöðu og lögregla hefði talsverðar áhyggjur af velferð þeirra. Betur fór þó í Flórída en á horfðist. Er það annars vegar vegna þess að Irma sveigði til vesturs og þurfti því að fara lengri leið yfir land áður en hún gekk yfir þéttbýliskjarna. Hins vegar hafði ríkið mikinn tíma til undirbúnings.
Fellibylurinn Irma Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira