Bilic: Þetta er enginn venjulegur æfingaleikur Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 3. ágúst 2017 20:20 Slaven Bilic. Vísir „
Við höfum staðið okkur vel á leikmannamarkaðnum. Stjórnin og stjórnarformaðurinn hafa staðið sig vel og við höfum fengið það sem við þurftum,“ sagði Slaven Bilic, stjóri West Ham, í samtali við Hörð Magnússon í kvöldfréttum Stöðvar 2. West Ham mætir Manchester City á Laugardalsvelli klukkan 14.00 á morgun en bæði lið æfðu í Laugardalnum í dag. West Ham hefur styrkt sig í sumar og fengið öfluga leikmenn til liðs við sig, svo sem Javier Hernandez, Marko Arnautovic, Pablo Zabaleta og Joe Hart. „Ekki allir eru í sínu besta leikformi, til að mynda Chicharito sem kom til okkar fyrir einni viku síðan. Það eru einhver meiðsli frá síðasta tímabili og einhverjir munu missa af örfáum leikjum, en við erum ánægð með stöðu mála.“ Bilic segir að leikurinn gegn City verði stórleikur, þrátt fyrir að um æfingaleik sé að ræða. „Það eru nokkrar ástæður fyrir því. Þetta er síðasti leikur beggja liða fyrir upphaf nýs tímabils og svo er þetta í fyrsta sinn sem að tvö ensk úrvalsdeildarlið mætast á Íslandi. Það eru mikil forréttindi fyrir okkur að taka þátt í því.“ „Ég er viss um að það verður mikið af fólki á vellinum á morgun.“ „Þetta er því ekkert venjulegur æfingaleikur. Þetta er alvöru leikur sem mun sýna hvar við stöndum rétt áður en nýtt tímabil hefst.“
Enski boltinn Mest lesið Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti „Ísland breytti lífi mínu“ Íslenski boltinn Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Enski boltinn „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Körfubolti Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Enski boltinn Óliver vann opna breska í piltaflokki Golf Daníel með slitna hásin Handbolti Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Þór Ak. - Keflavík | Geta sett nágranna sína á botninn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Víti í blálokin kom í veg fyrir að mark Andra væri sigurmark Sancho neitar liðum á Englandi og vill fara erlendis Jeff Bezos kaupir hlut í Liverpool Ætla ekki að bjóða í Enzo Fernández í dag Arsenal á eftir fyrrverandi leikmanni Liverpool Á leið til Sádi-Arabíu eftir aðeins eitt ár hjá City Carrick vill fá fleiri nýja leikmenn í Man United Neville svarar Lineker: Disney+ kaupir réttinn að The Overlap Orðaður við Chelsea og Manchester United en vill ekki fara Tielemans biðst afsökunar Þurfti að bíða í 212 daga eftir fyrsta leik með Villa: „Haaland í mótun“ Spurs samþykkir tilboð Atlético í Romero Fékk rautt, tók liðið út af og gaf skít í vítakeppni Arteta segir að Arsenal vilji gera meira á markaðnum Segir lykilatriði fyrir titilvonir Liverpool að ná í Barcola Fabrizio Romano að hætta Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Sjá meira