Ítölsku stelpurnar skoruðu flest mörk í B-riðlinum en urðu samt neðstar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2017 20:46 Ítölsku stelpurnar fagna sigurmarki Cristiönu Girelli í kvöld. Vísir/Getty
Ítalska kvennalandsliðið í fótbolta var í kvöld í sömu stöðu og íslensku stelpurnar verða á morgun í lokaleik sínum á EM kvenna í Hollandi. Ítölsku stelpurnar voru úr leik fyrir lokaleik sinn eftir töp á móti Þýskalandi og Rússlandi. Ítalska liðið náði hinsvegar að kveðja Evrópumótið með flottum sigri því þær unnu 3-2 sigur á sterku sænsku liði í kvöld. Nú er bara að vona að stelpunum okkar takist að gera eitthvað svipað í lokaleik sínum á móti Austurríki annað kvöld. Þýskaland vann B-riðilinn og sænska liðið komst einnig áfram í sextán liða úrslitin. Rússland varð í þriðja sæti í riðlinum og Ítalía rak lestina. Ítölsku stelpurnar voru hinsvegar það lið í B-riðlinum sem skoraði flest mörk. Þær skoruðu nefnilega í öllum þremur leikjum sínum og samtals fimm mörk. Ítalska liðið skoraði þannig þremur mörkum fleira en Rússar en bæði mörk rússneska liðsins komu í 2-0 sigri á Ítölum í fyrsta leik. Sá sigur skilaði rússneska liðinu á endanum upp fyrir Ítalíu og í þriðja sæti riðilsins.Flest mörk í B-riðli Ítalía 5 Þýskaland 4 Svíþjóð 4 Rússland 2Flest stig í B-riðli Þýskaland 7 Svíþjóð 4 Rússland 3 Ítalía 3Markahæstar í B-riðlinum Ilaria Mauro, Ítalíu 2 Daniela Sabatino, Ítalíu 2 Babett Peter, Þýskalandi 2 Lotta Schelin, Svíþjóð 2 Stina Blackstenius, Svíþjóð 2
EM 2017 í Hollandi Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Reynir farinn að láta til sín taka í þýsku deildinni Handbolti Fleiri fréttir Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Malí tók stig af heimamönnum Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Frönsk fótboltagoðsögn lést á jólunum Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Sjá meira