Tryggvi hélt að sonurinn væri að fá rautt spjald fyrir dýfu en hann fékk víti 20. júní 2017 15:00 Guðmundur Andri fékk nýjan samning hjá KR í byrjun apríl. mynd/kr
Guðmundur Andri Tryggvason, 18 ára gamall leikmaður KR í Pepsi-deild karla, var heldur betur á milli tannanna á fólki í gærkvöldi þegar hann fiskaði vítaspyrnu í uppbótartíma á móti Breiðabliki í 1-1 jafntefli liðanna á Alvogen-vellinum. KR var 1-0 undir þegar að það fékk vítið en með tapi hefði liðið verið í fallsæti eftir átta umferðir. Guðmundur Andri elti boltann inn á teiginn og féll til jarðar þrátt fyrir að Gunnleifur Gunnleifsson virtist ekki koma við hann. Andri var á gulu spjaldi áður en hann henti sér niður. Halda margir fram að um hreina og klára dýfu hafi verið að ræða en Þóroddur Hjaltalín, dómari leiksins, benti á punktinn og úr vítinu skoraði Óskar Örn Hauksson. Tryggvi Guðmundsson, markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi og faðir Guðmundar Andra, ræðir þetta mál í „Þrennu Tryggva“ á fótbolti.net þar sem hann gerir upp þrjú atvik í hverri umferð Pepsi-deildarinnar. „Ég var sjálfur skítsmeykur við að það væri verið að fara að dæma dýfu á hann og hann fengi sitt annað gula og þar með rautt nýkominn inn sem varamaður,“ segir Tryggvi. „Það er rosalega stutt á milli þess að vera hetja eða skúrkur í þessu. Þegar upp er staðið nælir hann í víti og reddar mikilvægu stigi fyrir KR. Ég ætla ekki sjálfur að dæma um það hvort þetta hafi verið víti eða ekki en þeir menn sem voru mest innblandaðir í atvikið segja víti,“ segir Tryggvi Guðmundsson um soninn.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Breiðablik 1-1 | Óskar kom í veg fyrir að KR færi í fallsæti Óskar Örn Hauksson bjargaði stigi fyrir KR gegn Breiðabliki með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. 19. júní 2017 22:45 Óskar Hrafn: Willum talar eins og hann sé á rúllandi samningi á milli leikja | Myndband Óskar Hrafn Þorvaldsson skilur ekkert í ummælum Willums Þórs Þórssonar, þjálfara KR. 20. júní 2017 12:00 Mest lesið Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Fótbolti Finnur Freyr: „Kannski hefur Davíð Tómas eitthvað til síns máls“ Körfubolti Holland getur fagnað HM-sæti en Þýskaland þarf stig Fótbolti Króatar á HM en draumur Færeyja úti Fótbolti Uppgjör: Valur - Álftanes 92-80 | Hökkuðu gestina í sig án Kristófers Körfubolti Styrmir sterkur í sigri á Spáni Körfubolti Mynd um leið Snæfells að fyrsta Íslandsmeistaratitlinum Körfubolti Þungavigtin: Gummi Tóta kveður New York í úrslitaleiknum Fótbolti Þungavigtin: Mike hefur miklar áhyggjur af því að KR falli í körfunni Körfubolti Brasilíumenn byrja vel undir stjórn Menezes - myndband Fótbolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Breiðablik 1-1 | Óskar kom í veg fyrir að KR færi í fallsæti Óskar Örn Hauksson bjargaði stigi fyrir KR gegn Breiðabliki með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma. 19. júní 2017 22:45
Óskar Hrafn: Willum talar eins og hann sé á rúllandi samningi á milli leikja | Myndband Óskar Hrafn Þorvaldsson skilur ekkert í ummælum Willums Þórs Þórssonar, þjálfara KR. 20. júní 2017 12:00