Bubalo kramdi hjörtu Leiknismanna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. júní 2017 16:03 Fram er komið upp í 2. sæti deildarinnar. vísir/hanna
Fram lyfti sér upp í 2. sæti Inkasso-deildarinnar með dramatískum 1-2 sigri á Leikni F. fyrir austan í dag. Ivan Bubalo skoraði bæði mörk Fram, það síðara úr vítaspyrnu þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Bubalo hefur skorað í öllum fimm leikjum Fram í Inkasso-deildinni, alls sex mörk. Fjögur af þessum mörkum hafa verið skoruð á 80. mínútu eða síðar. Bubalo kom Fram í 0-1 á 24. mínútu eftir að Robert Winogrodzki varði skot Simons Smidt út í teiginn. Jesus Guerrero Suarez jafnaði metin 11 mínútum síðar. Bubalo skoraði svo sigurmarkið á elleftu stundu eins og áður sagði. Leiknismenn eru í tólfta og neðsta sæti deildarinnar með eitt stig. Eftir rýra uppskeru í síðustu tveimur deildarleikjum vann Selfoss 1-0 sigur á HK á heimavelli í dag. Selfyssingar eru í 4. sæti deildarinnar með 10 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Þróttar. HK-ingar eru hins vegar í 7. sætinu með sex stig. Alfi Conteh Lacalle skoraði eina mark leiksins fjórum mínútum fyrir hálfleik. Þetta var fyrsta mark Lacalle í Inkasso-deildinni en hann er hins vegar kominn með sex mörk í Borgunarbikarnum. HK sótti í sig veðrið í seinni hálfleik og fékk tækifæri til að jafna metin. Árni Arnarson komst næst því þegar hann skallaði boltann í slánna á 78. mínútu. En Selfyssingar héldu út og fögnuðu sínum þriðja deildarsigri í sumar. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Faðir Vonn tjáir sig og vill ekki sjá dóttur sína keppa aftur Sport Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Sport Engin klipping því Manchester United gerði jafntefli Enski boltinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Formúla 1 „Má ekkert segja um þessa dómara en þetta var hræðilegt“ Sport Elliði Snær markahæstur í mikilvægum sigri Handbolti Mikilvægur sigur Tindastóls sem fær heimavallarrétt í Evrópu Körfubolti Tárin flæddu þegar Leerdam tróð upp í gagnrýnendur Sport Vonn tjáir sig eftir atvikið óhugnanlega: „Sé ekki eftir neinu“ Sport „Ég svaf ekki mikið í nótt“ Sport Fleiri fréttir Freyja með þrennu er Víkingur valtaði yfir Fram Hallgrímur bætist við landsliðshópinn Kristján krækti í einn besta leikmann Bestu deildarinnar Guðmundur Magnússon skiptir úr bláu í grænt Fótboltalið Vals semur við son Alexanders Petersson Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö FH sækir sænskan miðvörð „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Böðvar kominn til ÍA frá FH Víkingar keyptu Helenu af Val Stjarnan sækir miðvörð að vestan Kralj fer til Keflavíkur Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi „Búið að vera smá erfitt fyrir hausinn en svona gerist“ Bragi Karl stimplaði sig inn með marki í fyrsta leik Íslandsmeistararnir byrja vel og KR sótti sigur á Akureyri Valur er Reykjavíkurmeistari árið 2026 Davíð Smári sækir fleiri leikmenn úr bikarævintýrinu Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Sjá meira