Ég verð klár í Króataleikinn Henry Birgir Gunnarsson skrifar 7. júní 2017 06:00 Það var létt yfir Birki Bjarnasyni fyrir æfingu í gær og hann er klár í slaginn stóra gegn frábæru liði Króata. vísir/ernir
Birkir Bjarnason var mættur á æfingu íslenska landsliðsins í gær og virkar stálhraustur. Ekki veitir af fyrir átökin miklu gegn Króötum um næstu helgi en það er alger lykilleikur fyrir íslenska liðið í undankeppni HM 2018. Birkir hefur verið meiddur lengi og hefur ekki spilað knattspyrnuleik í rúma þrjá mánuði vegna meiðslanna.Langt síðan ég spilaði fótbolta „Það er ekkert hægt að fela að það er langt síðan ég spilaði fótbolta en mér líður mjög vel í dag og hef verið að æfa vel og lengi. Ég hefði kannski getað byrjað að æfa aðeins fyrr en við tókum þá ákvörðun að það væri betra að bíða aðeins með það þar sem það var langt í landsleikinn. Ég held að það hafi verið klókt hjá okkur,“ segir Birkir en hann byrjaði að æfa af fullum krafti um miðjan síðasta mánuð. „Ég er orðinn 100 prósent góður og finn ekki fyrir neinum eymslum eftir æfingar. Er ekkert smeykur við að beita mér. Ég verð því fullkomlega klár í þennan leik gegn Króötum og get ekki beðið eftir að mæta í þann leik.“Liðið ætlar sér stærri hluti Birkir hafði vistaskipti í upphafi árs er hann fór frá Sviss yfir til Englands þar sem hann leikur með Aston Villa. Það gekk bölvanlega hjá liðinu er hann kom þangað en liðið átti þó ágætan endasprett í ensku B-deildinni. Þrátt fyrir smá bras innan vallar þá sér Birkir ekkert eftir því að hafa farið til Englands. „Þó svo hafi gengið illa þá var liðið að spila alveg ágætlega. Mér gekk bara vel en við náðum bara ekki að vinna. Við unnum leikinn sem ég meiddist í og svo unnum við átta í röð. En liðið ætlar sér stærri hluti og við ætlum upp næsta vetur,“ segir Birkir sem kann vel við sig á Englandi. Aston Villa er stórt félag og mikill fjöldi sem mætir á leiki liðsins. „Mér líkar vel við þetta allt saman. Umgjörðin er frábær og ég hef auðvitað alltaf viljað spila á Englandi. Það er mikil ástríða í Birmingham og reyndar bara í allri deildinni. Við slógum met í vetur yfir flesta áhorfendur í deildinni.“Gaman að vera með frá byrjun Nú mun Birkir ná fullu undirbúningstímabili með liðinu og hann er strax farinn að klæja í puttana að byrja á nýjan leik næsta haust. „Það verður gaman að vera með frá byrjun. Það er alltaf svolítið erfitt að koma inn á miðju tímabili. Ég hlakka mikið til að byrja og hef fulla trú á því að þetta verði gott tímabil hjá okkur,“ segir Birkir en hann náði aðeins að spila átta leiki fyrir Villa í vetur. Hann var í byrjunarliðinu í fimm af þessum leikjum. Ensku B-deildinni lauk frekar snemma þannig að Birkir hefur fengið ágætis frí. Venju samkvæmt eyddi hann drjúgum hluta af fríinu á Akureyri. „Það er alltaf gott að koma heim og hitta ættingja. Ég fer alltaf norður enda á ég marga ættingja þar. Mér líður alltaf langbest fyrir norðan,“ segir Birkir glaður.Fagnaði í Sviss Hann fór einnig til Ítalíu og var svo í Sviss á dögunum þar sem hann fagnaði með gömlu liðsfélögunum sínum í Basel er þeir fengu afhent sigurverðlaunin fyrir að vinna svissnesku deildina enn eitt árið. Birkir spilaði með þeim fyrri hluta tímabilsins og fékk því að sjálfsögðu verðlaunapening. „Ég fékk boð um að koma í fögnuðinn. Það var líka verið að kveðja forsetann og íþróttastjórann hjá félaginu. Þetta var virkilega skemmtilegur dagur. Það var reyndar svolítið skrítið að fagna með liði sem ég er ekki lengur í en ég var hluti af þessu liði hálfa leiktíðina og gaman að sjá alla strákana aftur og upplifa þetta.“
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Enski boltinn Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enski boltinn Labbaði í fjórtán tíma á keppnisstað og vann síðan 63 km ofurhlaup Sport Ótrúlegt golfhögg í reiðiskasti slær í gegn á netinu Golf Viktor Gísli fær treyju númer eitt hjá Barcelona Handbolti Fókus á bolta ekki bullur: „Á ekki að sjást í kringum fótboltaleiki“ Fótbolti UFC-bardagi í Hvíta húsinu á þjóðhátíðardaginn Sport Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Enski boltinn Er ekki loksins kominn tími á það að því að við vinnum Danina? Fótbolti Enska augnablikið: AGUERO!! Enski boltinn Fleiri fréttir Tony Adams vill að Arsenal skipti um fyrirliða Sjáðu stelpurnar taka yfir N1 mótið á Akureyri Rooney sár út í Tom Brady: „Fannst hann vera mjög ósanngjarn“ Chelsea gefur fjölskyldu Jota hluta af HM-bónusunum Er ekki loksins kominn tími á það að við vinnum Danina? Nýja stórstjarna Liverpool fékk ekki að hafa sjónvarp heima hjá sér Enska augnablikið: AGUERO!! Fókus á bolta ekki bullur: „Á ekki að sjást í kringum fótboltaleiki“ Leik U21 liðs Man United hætt vegna meiðsla leikmanns Calvert-Lewin á leið til Leeds Guðmundur í grænt Willum lagði upp sigurmark Birmingham Njarðvík með fjögurra stiga forskot á toppnum PSG kom til baka og vann Ofurbikarinn í vítakeppni Uppgjörið: Valur - Stjarnan 4-2 | Rhodes með þrennu í seinni hálfleik Jón Daði skoraði fyrsta markið fyrir Selfoss í þrettán ár og Fylkir á botninum Jason Daði og félagar fá Rauðu djöflana í heimsókn Mótherjarnir afsaka sig fyrir fram: „Hvort sem það er leikrit eða ekki“ Hártog er harðbannað og ekki skylda að vera með tagl Vill þjóðina upp á dekk: „Langt síðan við höfum átt alvöru heimavöll“ Brøndby brennir skipin: „Verðum að sækja og svo verðum við að sækja meira“ Enska augnablikið: Hugsaði til van Persie eftir frægt mark í Eyjum Matthías ekki lengi einsamall hjá Val Rashford segir Man. United fast í einskismannslandi Donnarumma sagður á leið til City í sögulegum skiptum Grealish valdi númerið sitt vegna Rooney og Gascoigne Fyrirmenni fótboltans á Norðurlöndum mæta til Íslands í vikunni Stjarnan sækir landsliðsfélaga Caulker „Fáránleg staða sem er komin upp“ Stuðningsmenn Chelsea bjartsýnastir en mjög svartsýnir hjá Newcastle Sjá meira