Nú ræður fjölbreytnin ríkjum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 30. maí 2017 09:30 Sá hluti Kammerkórs Seltjarnarneskirkju sem syngur í kvöld. Ragnhildur Dóra tyllir sér á steininn og er þar lengst til vinstri. Friðrik Vignir veifar glaðlega.
Okkur langaði að gera eitthvað skemmtilegt nú þegar veturinn hefur kvatt og því efnum við til tónleika í Seltjarnarneskirkju. Aðgangur er ókeypis og allir eru hjartanlega velkomnir að koma fagna sumrinu með okkur. Fólk getur átt von á háklassík og poppi og öllu þar á milli,“ segir Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir, einn félaganna í Kammerkór Seltjarnarneskirkju sem taka lagið í kirkjunni sinni í kvöld klukkan 20.30 á tónleikunum Úti um mela og móa. Á dagskránni eru einsöngslög, dúettar, kvartettar og fjölradda lög og músíkin verður úr ólíkum áttum, að sögn Ragnhildar Dóru, meðal annars finnsk og íslensk sönglög í bland við Mozart, Verdi, stríðsáraslagara og lög úr kvikmyndum. Friðrik Vignir Stefánsson, organisti kirkjunnar, spilar með bæði á píanó og harmóníku og einnig leikur ein kona úr kórnum á flautu. „Þessir tónleikar eru framtak okkar söngvaranna,“ segir Ragnhildur Dóra. „Við erum átján í kórnum en nú kemur bara hluti félaganna fram. Þetta er í annað sinn sem svona tónleikar eru haldnir og þeir tókust svo vel í fyrra að við ákváðum að endurtaka leikinn,“ lýsir hún og kveðst sjálf hafa byrjað í kórnum fyrir þremur árum. Ragnhildur Dóra segir öfluga kóra æfa í Seltjarnarneskirkju, annars vegar Selkórinn og hins vegar téðan kammerkór kirkjunnar. „Það er fólk úr kammerkórnum sem sér um söng við athafnir og guðsþjónustur í kirkjunni, yfirleitt eru það fjórir saman sem mynda kvartett,“ segir hún og bætir við: „Kórinn var með vortónleika 6. maí og þá sungum við Bach og sálmalög. Oftast er það sem sagt háalvarleg tónlist sem sungin er af þessum kór en nú ræður fjölbreytnin ríkjum, bæði fyrir áheyrendur og okkur sjálf.“
Menning Mest lesið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Lífið Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Fleiri fréttir Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira