Þór/KA áfram með fullt hús stiga | FH upp í 2. sætið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. maí 2017 19:53 Sandra Stephany Mayor Gutierrez var skotskónum í kvöld. vísir/anton
Þór/KA er áfram með fullt hús stiga á toppi Pepsi-deildar kvenna eftir 2-0 sigur á Haukum á Þórsvelli í kvöld. Þór/KA hefur unnið alla fjóra leiki sína til þessa með markatölunni 8-1. Haukar eru hins vegar án stiga í botnsæti deildarinnar. Staðan var markalaus í hálfleik en á 65. mínútu kom hin 16 ára gamla Hulda Björg Hannesdóttir Þór/KA yfir. Sandra Stephany Mayor Gutierrez tvöfaldaði svo forskotið með marki úr vítaspyrnu átta mínútum fyrir leikslok. Lokatölur 2-0, Þór/KA í vil. FH vann sinn þriðja leik í röð þegar liðið bar sigurorð af KR, 2-1, í Kaplakrika. Með sigrinum lyftu FH-ingar sér upp í 2. sæti deildarinnar. Aðeins 44 sekúndur voru liðnar af leiknum þegar FH var komið í 1-0. Caroline Murray gerði markið. Á 6. mínútu kom Guðný Árnadóttir FH svo í 2-0 með skoti beint úr aukaspyrnu. Ásdís Karen Halldórsdóttir hleypti spennu í leikinn þegar hún skoraði fyrsta mark KR í sumar á 74. mínútu. Nær komust gestirnir hins vegar ekki og FH fagnaði góðum sigri. KR er enn án stiga í níunda og næstneðsta sæti deildarinnar. Stuðningsmenn íslenska kvennalandsliðsins geta glaðst yfir því að bæði Sandra María Jessen og Hólmfríður Magnúsdóttir komu inn á fyrir Þór/KA og KR í kvöld en þær hafa verið frá vegna erfiðra meiðsla. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Fótbolti „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Fótbolti Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Körfubolti Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Fótbolti „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Myrti kærustuna og spurði svo ChatGPT hvað hann ætti að gera Sport „Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Enski boltinn Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Íslenski boltinn Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Sjá meira