Hyundai í Garðabæ kynnir rafbílinn IONIQ á laugardaginn Finnur Thorlacius skrifar 4. maí 2017 09:00 IONIQ Electric er Bíll ársins 2017 í Svíþjóð, Noregi og Frakklandi. Myndin er af fulltrúum Teknikens Världs þegar IONIQ var kjörinn Bíll ársins í Svíþjóð.
Rafmagnsbíllinn Hyundai IONIQ verður kynntur hjá Hyundai við Kauptún í Garðabæ nk. laugardag, 6. maí, milli kl 12 og 16. Þessi bíll, ásamt systurbílum sínum; IONIQ Hybrid og IONIQ Plug in Hybrid, hefur hlotið afar góðar viðtökur á mörkuðunum, en IONIQ er fyrsti bíllinn og enn sem komið er sá eini í boði þar sem neytendur geta valið um þrjár mismunandi útgáfur. Rafknúna útgáfa bílsins sem BL kynnir á laugardaginn milli 12 og 16 er nú handhafi titilsins „Bíll ársins 2017“ í Svíþjóð, Noregi og Frakklandi auk þess sem IONIQ hefur hlotið fjölda annarra verðlauna, m.a. „2016 Red Dot Design Award“, „GOOD DESIGN® Award 2015 og 2016 auk þess sem Euro NCAP segir hann á meðal öruggustu bílanna sem völ sé á á Evrópumarkaði og útnefndi hann bestan í flokki minni fjölskyldubíla 2016.Rafmagnsbíll fyrir fólkið Thomas A. Schmid, rekstrarstjóri Hyundai Motor Europe segir að verðlaunin sem IONIQ hafi hlotið séu til vitnis um getu og metnað Hyundai fyrir því að bjóða neytendum upp á umhverfismilda bíla. „IONIQ er einn hagkvæmasti græni bíllinn á Evrópumarkaði um þessar mundir vegna mikillar ábyrgðar framleiðanda, langdrægni rafhlöðunnar sem spannar um 280 km, mikils búnaðar og mjög samkeppnishæfs verðs. Þessa kosti getur Hyundai boðið án þess að gera málamiðlanir í hönnun, aksturseiginleikum eða tengi- og tæknimöguleikum bílsins. Í niðurstöðum dómnefndar Teknikens Världs sagði að IONIQ væri rafmagnsbíll fyrir fólkið.
Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Keyrði aftan á strætisvagn Innlent Ætla að flytja starfsemi Vogs Innlent