Eftir að ráða og reka 40 þjálfara á 15 árum er forseti Palermo að hætta Tómas Þór Þórðarson skrifar 28. febrúar 2017 16:30 Maurizio Zamparini með þjálfaranum Giuseppe Iachini fyrir nokkrum árum. Hann var rekinn. vísir/getty
Maurizio Zamparini, forseti Palermo á ítalíu, hefur ákveðið að láta af störfum en hann hefur verið forseti Sikileyjarfélagsins frá árinu 2002. Zamparini er frægur fyrir að ráða og reka þjálfara en starfsöryggið hjá Palermo er nákvæmlega ekkert. Síðan hann tók við fyrir fimmtán árum síðan hefur hann skipt 40 sinnum um þjálfara. BBC greinir frá. Palermo skipti í ellefta sinn um þjálfara á síðustu tveimur leiktíðum í síðasta mánuði þegar Úrúgvæinn Diego Lopez var ráðinn til starfa en liðið er í bullandi fallbaráttu í A-deildinni á Ítalíu, sjö stigum frá öruggu sæti þegar tólf umferðir eru eftir. Zamparini keypti félagið árið 2002 þegar það var í B-deildinni. Liðið var þá þjálfaralaust og sagði nýi forsetinn á þeim tíma: „Nýr stjóri verður tilkynntur innan fimmtán daga.“ Það stóðst en síðan þá hefur nýr stjóri nánast verið tilkynntur á fimmtán daga fresti. Þessi 75 ára gamli viðskiptajöfur hefur almennt gert góða hluti sem forseti Palermo en liðið hefur verið meira og minna í A-deildinni frá komu hans og spilað Evrópuleiki undir eignarhaldi Zamparini. Áður en hann keypti Palermo var hann eigandi Venezia sem er nú í C-deildinni og hefur verið þar nánast síðan Zamparini seldi félagið.
Ítalski boltinn Mest lesið „Ung kona vinnur gull og verður fyrir fordómum og niðurlægingu“ Sport Valdi Noreg fram yfir Ísland og kveður eftir tíu frábær ár Fótbolti Rústaði á sér fótunum en varð samt stjarna leikanna Sport Tveir fluttir á sjúkrahús eftir harkalegt slys Sport Willum þurfti að hætta út af of miklum snjó Fótbolti Sló 30 ára gamalt Íslandsmet Sport Blikar að landa Ívari Íslenski boltinn „Þeir gera allt til þess að blekkja okkur“ Fótbolti Perri varði víti og Leeds áfram Enski boltinn Grátlegt hjá Íslendingaliðinu Fótbolti Fleiri fréttir „Þeir gera allt til þess að blekkja okkur“ Blikar að landa Ívari Valdi Noreg fram yfir Ísland og kveður eftir tíu frábær ár Sigdís Eva hetjan í fyrsta leik KA vann meistarana og Stígur Diljan sá rautt Willum þurfti að hætta út af of miklum snjó Gerðu góða ferð yfir litla beltið Tók Arsenal bara korter að tæta Wigan í sig Úrvalsdeildarliðin áfram í 16-liða úrslit Úlfarnir mörðu D-deildarliðið í leðjuslag Nökkvi lagði upp í Íslendingaslagnum Sneri aftur á völlinn eftir hjartastopp Perri varði víti og Leeds áfram Karólína hetjan á ögurstundu Grátlegt hjá Íslendingaliðinu Hristu hausinn yfir ævintýralegum klúðrum KSÍ dregur úr verðhækkunum „Sönnun þess hvernig VAR hefur skaðað dómara“ Skoraði fyrir bæði lið í stórleiknum Tillaga um Breiðholt á ársþingi KSÍ Mark dæmt af Orra á Bernabéu Flugu af öryggi áfram í fimmtu umferð Tonali tryggði Newcastle áfram eftir skelfileg afglöp Bizot C-deildarlið sló Burnley út með draumamarki KR lenti tveimur undir en er enn án taps Stálheppnir gegn C-deildarliðinu Þægilegt hjá City og Guéhi getur varið titilinn Keflavík og HK á sigurbraut Finnst fátt skemmtilegra en skítkastið Vantaði smá pung og samdi við Gumma Magg Sjá meira