Þreföld draumabyrjun Draxler hjá Paris Saint-Germain Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. febrúar 2017 10:15 Julian Draxler. Vísir/Getty
Þjóðverjinn Julian Draxler hefur heldur betur stimplað sig inn hjá franska félaginu Paris Saint-Germain. Frakkarnir keyptu hann frá VfL Wolfsburg á Aðfangadag og hann var síðan löglegur í fyrsta leik liðsins á nýju ári. Julian Draxler var orðaður við Arsenal í vetur en hann bætti í hóp þeirra mörgu frábæru leikmanna sem Arsene Wenger hefur misst af á undanförnum árum. Í stað þess fékk hann nýjan samning við Paris Saint-Germain í jólagjöf og franska liðið sér örugglega ekki eftir því núna. Julian Draxler skoraði eitt marka liðsins í 4-0 stórsigri Paris Saint-Germain á Barcelona í Meistaradeildinni í gær en í framhaldinu er það fátt sem kemur í veg fyrir að franska liðið spili í átta liða úrslitum keppninnar í ar. Hann hefur þar með skorað í fyrsta leik með Paris Saint-Germain í þremur keppnum. Fyrsti leikur Julian Draxler með Paris Saint-Germain var í franska bikarnum 7. janúar síðastliðinn en hann skoraði þá lokamarkið í 7-0 stórsigri á SC Bastia eftir að hafa komið inn á sem varamaður á 58. mínútu. Viku síðar spilaði Julian Draxler fyrsta leikinn með Paris Saint-Germain í frönsku deildinni og skoraði þá eina markið í 1-0 sigri á Stade Rennais. Í gær lék hann síðan sinn fyrsta leik með Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni og skoraði þá annað mark liðsins í 4-0 stórsigri á Barcelona. Julian Draxler tókst ekki að skora í fjórtán leikjum meða VfL Wolfsburg í öllum keppnum fyrir áramót en hefur nú skorað 5 mörk í fyrstu 9 leikjum sínum í öllum keppnum með Paris Saint-Germain.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Fótbolti Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Fótbolti Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Íslenski boltinn Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Fótbolti Heimir spurður hvort að enn stafi ógn af Ronaldo Fótbolti Drap Messi-drauminn í fæðingu: „Ekki raunhæft“ Fótbolti Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Enski boltinn Aserar áhugalitlir og völlurinn hálftómur Sport Fleiri fréttir 23 ára forseti ítalsks félags: „Þú þarft ekki að vera karlmaður til að reka félag“ Franski rapparinn segir deilurnar við Mbappé bara misskilning „Þetta er mjög steikt“ Drap Messi-drauminn í fæðingu: „Ekki raunhæft“ Fantasýn: Bara nítján stigum frá toppnum á Íslandi Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Sjáðu Glódísi Perlu tryggja sigur á Evrópumeisturum í tímamótaleik „Veit ekki alveg hvort þetta standist lög og reglur“ Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona EM án Anfield og Old Trafford byrjar í Wales og endar á Wembley Heimir spurður hvort að enn stafi ógn af Ronaldo Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Sjálfsmark Cecilíu skildi á milli í tapi Inter Glódís hetjan í ótrúlegum sigri á Arsenal Arna Sif aftur heim Leiðin á HM: Þetta er hálfpartinn eins og á Manhattan Uppgjörið: Breiðablik - Fortuna 0-1| Dönsku meistararnir þurftu að hafa fyrir hlutunum Segir að Yamal sé afar sorgmæddur og sár Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Mjög spennt að sjá hvað þær geta“ Leikmaður Keflavíkur kallaður inn í landslið Palestínu Mikael ekki með í leikjunum mikilvægu og Logi er lasinn Strákarnir æfðu í sólinni í Bakú Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú „Ráðafólk fótboltans verður að hlusta á áhyggjur kvenna“ Fyrrverandi Chelsea-stjarna missti meðvitund á æfingu Sjá meira