Venus í undanúrslit í fyrsta sinn í 14 ár Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. janúar 2017 10:57 Venus Williams var ánægð með sigurinn í nótt. Vísir/Getty
Venus Williams og Roger Federer eru bæði komin áfram í undanúrslit í einliðaleik á opna ástralska meistaramótinu í tennis, fyrsta risamóti ársins. Williams komst í nótt áfram í undanúrslitin í fyrsta sinn í fjórtán ár með sigri á Anastasia Pavlyuchenkova í tveimur settum, 6-4 og 7-6. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2003 að hún komst áfram í undanúrslit á mótinu en fyrir fjórtán árum síðan fór hún í úrslitin þar sem hún tapaði fyrir systur sinni, Serenu. Venus mætir Coco Vandeweghe, löndu sinni frá Bandaríkjunum, sem sló Angelique Kerber, ríkjandi meistara og efstu konu heimslistans, úr leik á mótinu. Vandeweghe fór illa með Garbine Muguruza frá Spáni í fjórðungsúrslitunum, 6-4 og 6-0, í nótt. Serena Williams keppir í fjórðungsúrslitum í nótt og mætir þá Johanna Konta frá Bretlandi.Roger Federer hafði ekki mikið fyrir sigrinum í morgun.Vísir/GettyFederer mætir Wawrinka Talsvert hefur verið um óvænt úrslit í einliðaleik karla en í morgun komst Roger Federer í undanúrslit með því að vinna Mischa Zverev örugglaga, 6-1, 7-6 og 6-2. Zverev hafði óvænt náð að slá Andy Murray, efsta mann heimslistans, úr leik á sunnudag. Federer mætir nú landa sínum frá Sviss, Stan Wawrinka, í undanúrslitum en Federer er fjórfaldur meistari í Ástralíu og hefur sautján sinnum unnið stórmót á ferlinum. Wawrinka vann þó opna ástralska fyrir þremur árum og hefur bætt við tveimur risamótstitlum síðan þá. Margir telja hann líklegan til afreka í ár.
Tennis Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Fótbolti Einhenta undrið ekki í NBA Körfubolti Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM Fótbolti FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Fótbolti Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Fótbolti Fyrstu peningaverðlaunin á ferlinum Sport Fleiri fréttir Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM „Mér finnst þetta vera brandari“ Fyrstu peningaverðlaunin á ferlinum Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi „Erfiðasti tíminn í mínu lífi“ Stelpurnar okkar mættar í paradísina Chelsea áfram eftir tveggja klukkutíma töf og framlengingu Bonny til Inter Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Dagskráin í dag: Besta deildin og Formúla 1 Einhenta undrið ekki í NBA Leikur Chelsea og Benfica blásinn af Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Penninn á lofti í Keflavík FH-ingar flytja Kaplakrika í Laugardalinn Palmeiras fyrsta liðið í átta liða úrslit Pogba orðinn leikmaður AS Monaco Norris á ráspól á morgun með yfirburðum Aðeins Færeyingurinn öflugi hefur búið til fleiri mörk á HM en Elmar Mikael mættur til að vinna titla með Djurgården: „Ég er sigurvegari sjálfur“ „Versta hugmynd sem hefur komið fram“ Fyrsti sigur Fylkismanna í fimmtíu daga „Þvílík vika“ hjá Andreu Jamaíkamaður í hóp þeirra fljótustu í sögunni Stelpurnar unnu Svía 54 prósent líkur á að stelpurnar okkar komist í átta liða úrslitin á EM Forest var búið að kaupa landsliðsmann en hann vildi ekki koma Gæti fengið fjögurra ára bann fyrir að reyna að fá gult spjald Sjá meira