Hetja KR frá 2016 byrjar árið 2017 mjög vel Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2017 13:45 Sigríður María S Sigurðardóttir. Vísir/Eyþór
Sigríður María S Sigurðardóttir var á skotskónum þegar KR vann 5-1 stórsigur á HK/Víkingi í fyrsta leik liðanna í Reykjavíkurmóti kvenna í fótbolta í gær. Sigríður María skoraði þrennu í leiknum og breytti þá stöðunni úr 1-1 í 4-1 en eftir þessi þrjú mörk hennar voru úrslitin ráðin. Það er einmitt Sigríði Maríu S Sigurðardóttur að þakka að KR spilar í Pepsi-deildinni í sumar. Hún skoraði sigurmark KR upp á Skaga í lokaumferðinni en markið, sem kom þrettán mínútum fyrir leikslok, bjargaði Vesturbæjarliðinu frá falli. Sara Lissy Chontosh kom KR í 1-0 á 20. mínútu en jafnaði fyrir HK/Víking aðeins mínútu síðar. Þrenna Sigríðar Maríu kom á 25 mínútna kafla frá 31. til 56. mínútu en hún skoraði tvö mörk á síðustu fjórtán mínútum fyrri hálfleiksins. Katrín Ómarsdóttir lék sinn fyrsta leik með KR frá 2009 og hún hélt upp á það með því að innsigla sigurinn á 79. mínútu. Sigríður María S Sigurðardóttir er tvítug en er engu að síður að hefja sitt sjötta tímabil með meistaraflokki. Hún spilaði tvo leiki í Pepsi-deildinni 2012 og hefur síðan verið í stóru hlutverki frá árinu 2013. Sigríður María skoraði 4 mörk í 14 leikjum í Pepsi-deild kvenna í fyrra og var markahæsti leikmaður KR-liðsins ásamt Ásdísi Karen Halldórsdóttur.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Sjáðu geggjaðan snúning Alberts áður en hann skoraði frábært mark Fótbolti Bunting dró orð sín til baka með tárin í augunum: „Ég er ekki meistari fólksins“ Sport Sakaður um svindl á HM í pílukasti Sport Hættur aðeins þrítugur Golf Táningur fær mikið hrós fyrir viðbrögð sín þegar mótherji missti meðvitund Fótbolti Áhorfendur ærðust eftir mögulega mark mótsins í fyrsta leik Fótbolti Klappstýrur Björgvins Karls slógu í gegn Sport Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Íslenski boltinn Stórstjarna úr WNBA-deildinni í heimsókn á Íslandi Körfubolti „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Enski boltinn Fleiri fréttir Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Sjá meira