Írar vilja að landamærin verði opin áfram Guðsteinn Bjarnason skrifar 7. október 2016 07:00 Charles Flanagan, utanríkisráðherra Írlands, segir nauðsynlegt að landamærin að Norður-Írland verði áfram opin. vísir/epa
Írska ríkisstjórnin hyggst fara fram á samningaviðræður við Evrópusambandið um að landamærunum að Norður-Írlandi verði áfram haldið opnum eftir að Bretland hefur formlega yfirgefið Evrópusambandið. Írar hafa áhyggjur af því að brotthvarf Bretlands hafi það í för með sér að landamærum Írlands og Norður-Írlands verði vandlega lokað, fari svo að samningaviðræður Breta við Evrópusambandið endi með því að Bretar skelli öllu í lás. Sérsamningur við Írland myndi hins vegar þýða að íbúar annarra Evrópusambandsríkja ættu áfram greiða leið til Bretlands í gegnum Írland. Írska stjórnin hittist í gær til að ræða útgöngu Bretlands og áhrifin sem hún kunni að hafa á Írland. Þá hafa stjórnvöld á Norður-Írlandi einnig áhyggjur af útgöngu úr Evrópusambandinu og hafa leitað til hæstaréttar Norður-Írlands. Ronan Lavery, lögmaður norður-írsku stjórnarinnar, fullyrti í gær að Norður-Írland geti hafnað útgöngu á grundvelli friðarsamningsins um Norður-Írland, sem gerður var á föstudaginn langa árið 1998. „Brotthvarf úr Evrópusambandinu er svo djúpstæð breyting að hún þarf samþykki frá íbúum Norður-Írlands,” hafði Reuters-fréttastofan eftir honum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Brexit Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Í deilum við nágrannann vegna trjáa Erlent Tvær þyrlur sækja fjóra eftir alvarlegan árekstur á Fagurhólsmýri Innlent Ekki boðlegt að þingið hunsi þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Segir dulda skattahækkun taka gildi á næsta ári Innlent Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Erlent Ferðakostnaður forsetans rúmar tuttugu milljónir Innlent Gróður farinn að grænka fyrir norðan Innlent Mesti snjór í New York í fjögur ár Erlent Sakamálin sem einkenndu árið sem er á enda Innlent „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Erlent Fleiri fréttir „Þetta er ansi flókið, en þó ekki svo flókið“ Átti gott samtal við Pútín Skildu farþega eftir í fyrri ferð og strönduðu í annarri Í deilum við nágrannann vegna trjáa Mesti snjór í New York í fjögur ár Þrír létust í óveðrinu Ræðir uppfærða friðaráætlun við Trump í dag Þriðji KFC-morðinginn fundinn rúmlega fjörutíu árum síðar Maðurinn sem var næstur í röðinni hjá mormónum látinn Einn látinn í óveðrinu í Svíþjóð Níu handteknir fyrir að safna pening fyrir Hamas Fjórir göngumenn látnir eftir snjóflóð í Grikklandi Brenndu rangt lík Leita í rústum íbúðahúsa Noregur hyggst innleiða samfélagsmiðlabann Semja aftur um vopnahlé Ísrael viðurkennir sjálfstæði Sómalílands fyrst allra landa Röð stunguárása í neðanjarðarlestinni Loftárásum fagnað sem „stórkostlegri jólagjöf“ og meira sagt í vændum Minnst fimmtán særðir eftir hnífa- og efnaárás í Japan Mun funda með Trump „í náinni framtíð“ Fyrirskipaði árásir á „hryðjuverkaúrhrök“ í Nígeríu Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Fjallaði um stríðsátök í jólaávarpinu Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Sjá meira