Styttist í heimkomu hjá Ólafi Inga Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. september 2016 15:21 Ólafur Ingi gæti verið á heimleið. vísir/getty
Talsverðar líkur eru á því að miðjumaðurinn Ólafur Ingi Skúlason leiki á Íslandi næsta sumar. 433.is greinir frá. Ólafur gerði tveggja ára samning við tyrkneska liðið Karabükspor í sumar en hann er með ákvæði í samningi sínum sem gerir honum kleift að koma heim, kjósi hann að gera það. Í frétt 433.is kemur fram að fjölskylda Ólafs sé flutt til Íslands og það styttist í heimkomu hjá honum. „Það er ekki alveg hægt að fara beint út í þetta núna, ég er með tveggja ára samning hérna. Ég hef hug á því að spila heima þegar ég kem,“ sagði Ólafur í samtali við 433.is. „Það verður bara koma í ljós hvort ég komi heim fyrir næsta sumar, það getur allt gerst. Hugurinn leitar heim, fjölskyldan er heima og það er því ekki ólíklegt að ég komi líka.“ Ólafur er Fylkismaður en uppeldisfélag hans er sem stendur í fallsæti í Pepsi-deildinni. Ólafur var í fjögur ár á mála hjá Arsenal en lék aðeins einn leik með aðalliði félagsins. Hann hefur einnig leikið með Brentford, Helsingborg, SönderjyskE, Zulte Waregem og Genclerbirgligi á ferli sínum í atvinnumennsku. Ólafur hefur leikið 26 A-landsleiki fyrir Ísland en hann komst ekki í lokahópinn fyrir EM 2016.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Sjáðu vítakeppnina og mörkin í sigri PSG Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Óskar Smári: „ Ánægður með varnarleikinn, stigin og úrslitin“ Uppgjörið: FH - Fram 6-2 | FH-liðið hrökk í gang í seinni hálfleik með Niu í broddi fylkingar PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Sjö marka veisla og Skagasigur gegn lánlausum FH-ingum Gri/Nja - Breiðablik 0-5 | Blikar refsuðu heimakonum grimmilega Stjarnan - ÍBV 2-0 | Garðbæingar á sigurbraut Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Timber klár í slaginn Wenger treystir á Arteta: „Eitthvað sem maður hugsar um og gleymir aldrei“ Slot rekinn frá Liverpool Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar „Betra liðið tapaði” „Ég er rígmontinn af þeim” Gordon mættur til Börsunga „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ „Allir tala um hvað ég er gamall“ Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Böðvar: Drullu mikilvægur sigur Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Fram - Breiðablik 4-3 | Fara fljúgandi í landsleikjahléið Bjóða tónleikamiða í skiptum við Yamal Valur - Þróttur 0-1|Sigra manni færri á útivelli „Amma mín heitin gæti látið Vitinha spila vel“ Mourinho kynntur til leiks eftir kosningar Brann kveður Jón Dag Sjá meira