Agüero með þrennu í öruggum sigri Man City Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. september 2016 20:30 City-menn fagna. vísir/getty
Sergio Agüero skoraði þrennu þegar Manchester City vann 4-0 sigur á Borussia Mönchengladbach í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Leikurinn átti að fara fram í gær en var frestað vegna mikillar rigningar í Manchester. Agüero var í miklu stuði og skoraði sína aðra þrennu í Meistaradeildinni í ár. Hann skoraði einnig þrjú mörk þegar City vann Steuea Búkarest í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppninni í síðasta mánuði. Fyrsta markið kom strax á 8. mínútu. Agüero setti þá boltann í netið af stuttu færi eftir fyrirgjöf Aleksandars Kolarov. Argentínumaðurinn skoraði annað markið úr vítaspyrnu á 28. mínútu og það þriðja á 77. mínútu eftir stungusendingu Raheems Sterling. Agüero fór af velli á 83. mínútu og í hans stað kom Kelechi Iheanacho. Nígeríumaðurinn ungi negldi svo síðasta naglann í kistu Mönchengladbach þegar hann skoraði fjórða mark City í uppbótartíma. Lokatölur 4-0, City í vil. City er því með þrjú stig í A-riðli líkt og Barcelona sem vann 7-0 sigur á Celtic í gær.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Fótbolti Vann hálft maraþon, fæddi barn og varð svo meistari í heilu maraþoni Sport Næst yngsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Sport Tilfinningaþrungin stund þegar Magnús Máni kom í mark Sport Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Fótbolti Magnaður sigur Dags í Vestratreyju: „Núna er bara stefnan sett á ÓL“ Sport Elísa langfyrst fyrir Magnús Mána: „Þessi dagur er fyrir hann“ Sport Sjálfsmark í blálokin bjargaði Börsungum Fótbolti Orðinn langþreyttur á glímunni við Útlendingastofnun Fótbolti Keflvíkingar létu mörkunum rigna gegn Völsungi Fótbolti Fleiri fréttir Guðlaugur Victor til Danmerkur á ný Yfirgaf æfingaferð Marseille í áfalli Keflvíkingar létu mörkunum rigna gegn Völsungi Sjálfsmark í blálokin bjargaði Börsungum Þórsarar á toppinn Orðinn langþreyttur á glímunni við Útlendingastofnun Eze í treyju númer tíu og byrjar á stórleik við Liverpool Þrír leikir í enska: Draumabyrjun Outtara en gömlu félagarnir unnu líka Öruggur sigur Arsenal á nýliðunum Þróttur fær tvo tíma á toppnum og Fylkir úr fallsæti Ronaldo þarf enn að bíða eftir titli þrátt fyrir tímamótamark Hjörvar fékk treyju með kveðju frá De Gea í beinni Skelfileg mistök City og fullkomin byrjun Spurs Valgeir fékk að spila og lagði strax upp í fyrsta sigrinum Sjáðu „fólkið frá þessum stað“ fagna í alvöru gæsahúðarmyndbandi Aurier í bann vegna lifrarbólgu Myndaveisla frá sögulegri stund Vestra Sjáðu markaveisluna hjá Chelsea í Austur-Lundúnum „Greenwood fékk annað tækifæri en ekki sonur minn“ Potter niðurlútur: „Ekki margt jákvætt“ „Það er æfing á morgun“ „Flottasta mark sem ég hef skorað á ferlinum“ Patrick sleit hásin og verður frá út tímabilið „Lið úr bæ þar sem eru fleiri fiskar og kindur en fólk“ Uppgjörið: Valur - Vestri 0-1 | Vestri bikarmeistari í fyrsta sinn Chelsea svaraði með fimm mörkum og pressan á Potter eykst Uppgjörið: Breiðablik - Tindastóll 5-0 | Blikar fóru illa með laskaða Stóla Kane með þrennu er Bayern valtaði yfir Leipzig Framlengir við City: „Ég elska Manchester“ Palmer meiddist í upphitun og ekki með gegn West Ham Sjá meira