Taylor Swift er hætt með Tom Hiddleston Ritstjórn skrifar 6. september 2016 22:00 Hiddleswift voru þau oft kölluð en þau gerðu allt vitlaust þegar þau byrjuðu saman. Mynd/Getty
Taylor Swift og Tom Hiddleston eru hætt saman ef marka má fréttir frá miðlum vestanhafs. Þetta er eitthvað sem flestir hafa verið að bíða eftir en það voru afar fáir sem trúðu því að eitthvað væri spunnið í sambandið. Eins og frægt er byrjuðu Swift og Hiddleston saman um miðjan júní, aðeins tveimur vikum eftir að hún hætti með plötusnúðnum Calvin Harris. Mörgum þótti sambandið heldur furðulegt en þau voru strax farin að taka selfies eftir örfá stefnumót og búin að kynnast foreldrum hvors annars eftir aðeins eina viku. Það fór mikið fyrir parinu til að byrja með en þau ferðuðust saman til Bretlands, Ástralíu og Ítalíu þegar þau voru nýbyrjuð saman og papparassarnir voru duglegir að mynda þau. Margar sögusagnir voru um að þetta væri allt saman tilbúningur og það væri í raun verið að gera tónlistarmyndband fyrir nýjustu plötu Swift. Seinasta einn og hálfan mánuð hefur ekkert sést til þeirra en núna er loksins komin skýring. Taylor og Tom eru hætt saman en ástæðan er sögð vera vegna þess að hann hafi viljað meiri alvöru en hún var ekki tilbúin í svo mikla skuldbindingu.
Mest lesið Fegurð Kardashian systranna náttúruleg eða hvað? Glamour RosaLEGar samsæriskenningar Glamour Versace sýnir guðdómlega kjóla í París Glamour Þrjár góðar peysur í kuldanum Glamour Hlutverk Mr. Big í Sex and The City var upphaflega ætlað öðrum leikara Glamour Victoria's Secret tískusýning verður haldin í París þetta árið Glamour Emmy 2016: Verst klæddu stjörnurnar Glamour Mikilvægi olnbogans á forsíðu Time Glamour Tími buxnadragtarinnar er kominn! Glamour Hætt saman eftir tveggja ára samband Glamour