Þorsteinn: Vorum yfirburðalið á vellinum í fyrri hálfleik Smári Jökull Jónsson á Laugardalsvelli skrifar 12. ágúst 2016 21:55 Þorsteinn gefur bendingar á hliðarlínunni. vísir/hanna
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari nýkrýndra bikarmeistara Breiðabliks, var ánægður með sínar stelpur þegar Vísir náði tali af honum á Laugardalsvelli eftir sigurinn á ÍBV í úrslitaleik Borgunarbikarsins. „Ég myndi segja að þetta væri sanngjarn sigur. Við vorum yfirburðalið á vellinum í fyrri hálfleik, fengum mark á okkur snemma í seinni hálfleik og þá kom smá skjálfti í okkur,“ sagði Þorsteinn í leikslok. „Við sköpuðum flest færin í leiknum og vorum að opna þær nokkuð vel. En það kom smá skjálfti í okkur þegar við fengum á okkur markið og við hættum að ná að halda boltanum innan liðsins. „Þetta var hörkuleikur í seinni hálfleik en við náðum að svara þeirra marki ágætlega, vorum öguð og byrjuðum að opna vörnina hjá þeim aftur,“ bætti Þorsteinn við. „Það skipti máli að við skyldum skora strax í upphafi. Það er vont að mæta í úrslitaleik og fá mark á sig snemma. Maður sá að þeim leið ekki vel og það kom mikill skjálfti í Vestmannaeyjaliðið. Við náðum að nýta okkur það og spiluðum flottan fyrri hálfleik en sá seinni var jafnari.“ Blikar eru ríkjandi Íslandsmeistarar og bæta nú bikarnum í safnið. Þorsteinn sagði stefnuna setta á að verja titilinn. „Við ætlum að keppa um næsta bikar, það er ekki spurning. Við fögnum í dag og svo þurfum við bara að byrja að undirbúa okkur fyrir Íslandsmótið. En það er frábært að vinna í dag,“ sagði Þorsteinn kátur að lokum.
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Rakel: Farin heim að sofa Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Breiðabliks, var kampakát eftir að Blikar tryggðu sér sigur í Borgunarbikarnum með 3-1 sigri á ÍBV í úrslitaleik í kvöld. 12. ágúst 2016 21:48 Mest lesið „Þú ert bara að niðurlægja þinn eigin leikmann“ Fótbolti Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Fótbolti Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Körfubolti Utan vallar: Hjákátleg yfirlýsing í skugga stríðs Fótbolti Myrti kærustuna og spurði svo ChatGPT hvað hann ætti að gera Sport „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Handbolti „Fannst tilvalið að vera með í þessu“ Handbolti „Mér finnst Salah vera áhyggjuefni“ Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Sjá meira
Rakel: Farin heim að sofa Rakel Hönnudóttir, fyrirliði Breiðabliks, var kampakát eftir að Blikar tryggðu sér sigur í Borgunarbikarnum með 3-1 sigri á ÍBV í úrslitaleik í kvöld. 12. ágúst 2016 21:48