Selfoss rúllaði yfir Leikni | Haukar með annan sigurinn í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. ágúst 2016 21:15 Selfyssingar eru taplausir í síðustu sex deildarleikjum sínum. vísir/hanna
Fjórtánda umferð Inkasso-deildar karla hófst í kvöld með tveimur leikjum. Selfyssingar gerðu góða ferð í Breiðholtið og unnu óvæntan 0-3 sigur á Leikni R. Með sigrinum komst Selfoss upp í 5. sæti deildarinnar en liðið er aðeins fimm stigum frá 2. sætinu. Leiknismenn eru enn í 3. sætinu þrátt fyrir að hafa tapað tveimur leikjum í röð. Keflvíkingar geta komist upp fyrir Breiðhyltinga með sigri á Fjarðabyggð á laugardaginn. James Mack kom Selfyssingum yfir strax á 5. mínútu eftir langt innkast og skalla Andy Pew. Ivan Martinez Gutierrez skoraði annað mark gestanna á 38. mínútu og fjórum mínútum síðar vænkaðist hagur þeirra enn frekar þegar Leiknismaðurinn Halldór Kristinn Halldórsson fékk að líta rauða spjaldið. Ingi Rafn Ingibergsson gulltryggði svo sigur Selfyssinga þegar hann skoraði þriðja mark þeirra á 67. mínútu. Lokatölur 0-3, Selfossi í vil.Haukar eru komnir upp í 7. sæti Inkasso-deildarinnar.vísir/eyþórHaukar unnu sinn annan leik í röð þegar þeir fengu Fram í heimsókn. Lokatölur 3-1, Haukum í vil sem komust þar með upp fyrir Frammara í deildinni. Elton Renato Livramento Barros kom Haukum í 1-0 eftir aðeins sjö mínútna leik og þannig var staðan í hálfleik. Ivan Bubalo jafnaði metin á 63. mínútu en Aran Nganpanya var fljótur að koma Haukum aftur yfir þegar hann skoraði sitt fyrsta mark í sumar á 67. mínútu. Aðeins tveimur mínútum síðar skoraði Barros sitt annað mark og sá til þess að Haukar fengu öll þrjú stigin. Haukar eru nú í 7. sæti deildarinnar með 17 stig en Fram er í sætinu fyrir neðan með 16 stig.Upplýsingar um úrslit og gang leiksins eru fengnar frá Úrslit.net og Fótbolti.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Fótbolti Mario sleit krossband: „Gríðarlegt áfall fyrir Njarðvík“ Körfubolti Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira