Rúrik náði ekki að bjarga málunum og Nürnberg tapaði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. maí 2016 20:26 Rúrik Gíslason er með samning til ársins 2018. Vísir/Getty
Rúrik Gíslason og félagar í þýska liðinu Nürnberg spila áfram í þýsku b-deildinni eftir tap á heimavelli á móti Eintracht Frankfurt í kvöld í seinni umspilsleik liðanna um laust sæti í Bundesligunni. Nürnberg náði 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli Eintracht Frankfurt og var því í góðum málum fyrir seinni leikinn á sínum heimavelli. Eintracht Frankfurt endaði í þriðja neðsta sætinu í Bundesligunni en 1. FC Nürnberg í þriðja efsta sæti b-deildarinnar. Svissneski landsliðsmaðurinn Haris Seferović var hetja síns liðs í leiknum en hann skoraði eina markið á 66. mínútu. Rúrik Gíslason byrjaði á varamannabekknum en kom inná í tvöfaldri skiptingu átta mínútum eftir markið. Rúrik spilaði því síðustu sextán mínúturnar í kvöld. Hann fékk aðeins að spila eina mínútu í fyrri leiknum. 1. FC Nürnberg liðið eins og það heitir fullu nafni hefur spilað í b-deildinni undanfarin tvö tímabil og nú er ljóst að liðið þarf að eyða þar einu tímabili í viðbót. Rúrik Gíslason var ekki valinn í EM-hópinn á dögunum og er því kominn í sumarfrí. Hann missti mikið úr í vetur vegna meiðsla á hásin. Þetta var fyrsta tímabil Rúriks með Nürnberg-liðinu en hann er með samning út næstu tvö tímabil eða til ársins 2018.
Þýski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Óvissa í Indlandi lætur City selja Fótbolti United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Fleiri fréttir Mo Salah tryggði Egyptum sigur annan leikinn í röð Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka Sjá meira