Ragnar: Við söknum allir Sölva Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. maí 2016 12:00
Ragnar Sigurðsson segir ljóst að Sölva Geirs Ottesen verður sárt saknað á EM í Frakklandi en þeir hafa lengi verið samherjar í íslenska landsliðinu. Sölvi Geir datt úr íslenska landsliðinu í vetur og var ekki valinn í lokahópinn fyrir EM 2016 sem hefst eftir rúmar tvær vikur. „Þetta er leiðinlegt fyrir alla. Sölvi er skemmtilegur gaur og afar vel liðinn í hópnum og mjög vinsæll,“ sagði Ragnar í samtali við Vísi en viðtalið má sjá hér fyrir ofan. Sjá einnig: 23 bestu valdir fyrir EM í Frakklandi „En það eru þjálfararnir sem velja hópinn og við leikmenn setjum ekki út á það. Þetta er sterkur hópur sem við erum með.“ Hann segir að tilfinning sín fyrir EM í sumar sé góð og hann hefur ekki áhyggjur af slæmu gengi Íslands síðan að liðinu tókst að tryggja sér farseðilinn á EM í haust. „Við höfum ekki fengið mikið úr æfingaleikjum okkar síðustu fjögur árin og það hefur ekki haft áhrif á keppnisleikina hingað til. Ég hef engar áhyggjur af því,“ segir hann. „Það er bara ekki það sama að spila æfinga- og keppnisleiki. Nú höfum við fullt af efni úr þeim leikjum til að vinna með og við munum örugglega kíkja á þessi mörk sem við fengum á okkur. Og það er bara allt í góðu með það.“
EM 2016 í Frakklandi Tengdar fréttir Leikmenn fengu sms hálftíma á undan blaðamönnum Gunnleifur Gunnleifsson og Sölvi Geir Ottesen fara að óbreyttu ekki til Frakklands. 9. maí 2016 14:08 23 bestu valdir fyrir EM í Frakklandi Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson kynntu í gær hópinn sem fer á fyrsta stórmót karlalandsliðsins í fótbolta. 10. maí 2016 06:00 Mest lesið Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Golf Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Fótbolti Aserbaísjan - Ísland | Strákarnir okkar verða að sækja sigur í Bakú Fótbolti Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Fótbolti Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Íslenski boltinn Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Fótbolti Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Fótbolti Heimir spurður hvort að enn stafi ógn af Ronaldo Fótbolti Drap Messi-drauminn í fæðingu: „Ekki raunhæft“ Fótbolti Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona Enski boltinn Fleiri fréttir Rómantík hjá Arnari: „Feginn að hann sé ekki einhver stuðningsfulltrúi“ Ensku stjörnurnar klæðast hugbreytandi inniskóm Aserbaísjan - Ísland | Strákarnir okkar verða að sækja sigur í Bakú Jóhann Berg byrjar og spilar landsleik númer hundrað í kvöld Solskjær til í að taka við norska landsliðinu Stefnir Manchester United vegna „kynferðislegs og líkamlegs ofbeldis“ 23 ára forseti ítalsks félags: „Þú þarft ekki að vera karlmaður til að reka félag“ Franski rapparinn segir deilurnar við Mbappé bara misskilning „Þetta er mjög steikt“ Drap Messi-drauminn í fæðingu: „Ekki raunhæft“ Fantasýn: Bara nítján stigum frá toppnum á Íslandi Leiðin á HM: Fjögur þúsund manns hurfu sporlaust Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Ronaldo svaraði Heimi og sagði hann sniðugan Sjáðu Glódísi Perlu tryggja sigur á Evrópumeisturum í tímamótaleik „Veit ekki alveg hvort þetta standist lög og reglur“ Óli Jó segir að Geir hafi rekið hann þrisvar Segir Liverpool „fá ekkert“ út úr því að nota Mo Salah svona EM án Anfield og Old Trafford byrjar í Wales og endar á Wembley Heimir spurður hvort að enn stafi ógn af Ronaldo Sigurmark Glódísar olli sögulegu tapi Arsenal Sjálfsmark Cecilíu skildi á milli í tapi Inter Glódís hetjan í ótrúlegum sigri á Arsenal Arna Sif aftur heim Leiðin á HM: Þetta er hálfpartinn eins og á Manhattan Uppgjörið: Breiðablik - Fortuna 0-1| Dönsku meistararnir þurftu að hafa fyrir hlutunum Segir að Yamal sé afar sorgmæddur og sár Fyrrum United-maður sakaður um að hrækja á stuðningsmenn Úlfarnir komnir með nýjan þjálfara „Mjög spennt að sjá hvað þær geta“ Sjá meira
Leikmenn fengu sms hálftíma á undan blaðamönnum Gunnleifur Gunnleifsson og Sölvi Geir Ottesen fara að óbreyttu ekki til Frakklands. 9. maí 2016 14:08
23 bestu valdir fyrir EM í Frakklandi Lars Lagerbäck og Heimir Hallgrímsson kynntu í gær hópinn sem fer á fyrsta stórmót karlalandsliðsins í fótbolta. 10. maí 2016 06:00