Fá Víkingar aftur fjögurra marka skell í Kópavogi? | Sjáðu síðustu tvær markasúpur Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. maí 2016 11:00 Höskuldur Gunnlaugsson skoraði fallegt mark gegn Víkingi í fyrra. vísir/ernir
Breiðablik og Víkingur mætast í síðasta leik þriðju umferðar Pepsi-deildar karla í fótbolta klukkan 20.00 á Kópavogsvelli í kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport HD. Eftir tvær umferðir eru Blikar með þrjú stig en Víkingar eitt. Breiðablik vann Fylki, 2-1, í síðustu umferð en Víkingur tapaði fyrir Stjörnunni á heimavelli með sömu tölum eftir að vera 1-0 yfir í hálfleik. Ætli Víkingar að vinna sinn fyrsta sigur í kvöld verða þeir að múra betur fyrir markið en þeir hafa gert í síðustu tveimur heimsóknum sínum á Kópavogsvöllinn. Þeir fengu á sig fjögur mörk í síðustu tveimur útileikjum gegn Breiðablik og því átta mörk í heildina. Árni Vilhjálmsson skoraði þrjú af tíu mörkum sínum gegn Víkingi á Kópavogsvelli í 20. umferðinni 2014. Víkingar voru sama og hættir á þessum tímapunkti og töpuðu hverjum leiknum á fætur öðrum en komust engu að síður í Evrópukeppni í fyrsta sinn í 23 ár. Í fyrra mættust liðin í áttundu umferð deildarinnar þar sem Kristinn Jónsson skoraði tvö mörk. Víkingar voru eins og 2014 heillum horfnir á þessum tímapunkti en liðið sneri ekki við gengi sínu í deildinni fyrr en í seinni umferðinni. Tveimur vikum síðar var annar þjálfari liðsins, Ólafur Þórðarson, rekinn. Hér að neðan má sjá þessar tvær markasúpur Breiðabliks en leikur kvöldsins verður svo gerður upp ásamt öllum hinum leikjum umferðarinnar í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 Sport HD.2014: Breiðablik - Víkingur 4-1 1-0 Árni Vilhjálmsson (9.), 2-0 Árni Vilhjálmsson (19.), 2-1 Ívar Örn Jónsson (78. víti), 3-1 Árni Vilhjálmsson (82.), 4-1 Ellert Hreinsson (90.). 2015: Breiðablik - Víkingur 4-1 1-0 Kristinn Jónsson (15.), 2-0 Kristinn Jónsson (27.), 2-1 Rolf Toft (50.), 3-1 Höskuldur Gunnlaugsson (57.), 4-1 Ellert Hreinsson (86.).
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hvernig umspil færi Ísland í? Fótbolti Leikmenn dýrki Heimi sem ætti að fá nýjan samning Fótbolti Jói Kalli hættur fjölskyldunnar vegna og Fannar tekur við Fótbolti Skrautlegur ferðadagur Fótbolti „Mamma vill bara að ég sé í ballett“ Sport Hefði hætt ef Eriksen hefði ekki lifað af Fótbolti FCK-strákarnir tryggðu Íslandi sigur Fótbolti Haaland sótti sjötíu hamborgara fyrir HM-farana Fótbolti Veðbankar telja mun líklegra að Ísland falli úr leik Fótbolti Mario sleit krossband: „Gríðarlegt áfall fyrir Njarðvík“ Körfubolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira