Stóri samruninn blásinn af Sæunn Gísladóttir skrifar 7. apríl 2016 06:00 Samningurinn var metinn á 19.800 milljarða króna. vísir/Getty
Ekki verður af áformuðum samruna lyfjaframleiðandanna Pfizer og Allergan. Ástæða þess er ný lagasetning í Bandaríkjunum sem tilkynnt var um á mánudag. Samruninn var metinn á 160 milljarða dollara, jafnvirði 19.800 milljarða íslenskra króna. Pfizer mun greiða Allergan 150 milljón dollara, 18,6 milljarða íslenskra króna, vegna kostnaðar sem fyrirtækið lagði út í vegna samrunans. Nýju lögin í Bandaríkjunum voru skref í átt að því að koma í veg fyrir að fyrirtæki forðuðust skattgreiðslur í Bandaríkjunum með því að færa höfuðstöðvar sínar. Pfizer ætlaði að flytja höfuðstöðvar sínar til Írlands, þar sem Allergan er með höfuðstöðvar, og greiða einungis 12,5 prósenta fyrirtækjaskatt sem er mun lægri en fyrirtækjaskattur í Bandaríkjunum. Mörg bandarísk fyrirtæki hafa á undanförnum árum sent evrópskum fyrirtækjum tilboð um yfirtöku til þess að forðast skatta í Bandaríkjunum.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 7. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira