Alfreð átti þátt í tveimur mörkum þegar Augsburg og Leverkusen skildu jöfn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. mars 2016 16:14 Alfreð og Koo náðu frábærlega saman gegn Leverkusen. vísir/epa
Alfreð Finnbogason kom mikið við sögu þegar Augsburg gerði 3-3 jafntefli við Bayer Leverkusen í þýsku 1. deildinni í dag. Augsburg komst í 3-0 en glutraði forystunni niður á klaufalegan hátt í seinni hálfleik. Alfreð skoraði í síðasta heimaleik Augsburg, 2-2 jafntefli við Borussia Mönchengladbach, og hann átti stórgóðan leik í dag. Suður-Kóreumaðurinn Ja-Cheol Koo skoraði öll þrjú mörk Augsburg í dag en Alfreð átti stóran þátt í tveimur þeirra. Koo kom Augsburg yfir strax á 5. mínútu og bætti svo öðru marki við rétt fyrir hálfleik þegar hann fylgdi eftir skoti Alfreðs sem hafnaði í stönginni. Íslenski landsliðsframherjinn var ekki hættur því á 57. mínútu lagði hann boltann fyrir Koo sem fullkomnaði þrennuna og sigurinn virtist í höfn. Leverkusen-menn voru á öðru máli og Karim Bellarabi minnkaði muninn í 3-1 á 60. mínútu. Tuttugu mínútum síðar skoraði Paul Verhaegh sjálfsmark og hleypti þar með Leverkusen inn í leikinn fyrir alvöru. Það var svo Hakan Calhanoglu sem skoraði jöfnunarmark Leverkusen úr vítaspyrnu í uppbótartíma eftir að Jeffrey Gouweleeuw handlék boltann innan vítateigs. Alfreð og félagar eru í 14. sæti deildarinnar með 26 stig, þremur stigum frá fallsæti.Úrslit dagsins: Augsburg 3-3 Leverkusen Stuttgart 5-1 Hoffenheim Werder Bremen 4-1 Hannover Wolfsburg 2-1 Mönchengladbach Frankfurt 1-1 Ingolstadt Köln 1-3 Schalke
Þýski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Fleiri fréttir Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Sjá meira