Alfreð á stall með Eiði Smára Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. febrúar 2016 09:00 Alfreð Finnbogason skoraði fyrir Augsburg í gær. vísir/getty
Alfreð Finnbogason opnaði markareikninginn sinn fyrir þýska 1. deildar liðið FC Augsburg í gær þegar hann skoraði fyrra mark liðsins í 2-2 jafntefli á heimavelli gegn Borussia Mönchengladbach. Eftir 23 umferðir af 34 er Augsburg í þrettán sæti deildarinnar með 25 stig líkt og nýliðar Darmstad, en Alfreð og félagar eru fjórum stigum frá fallsvæðinu. Markið í gær var númer 101 í efstu deild hjá Alfreð á ferlinum og þá var hann að skora í efstu deild í sjöunda landinu. Með því jafnaði hann met Eiðs Smára Guðjohnsen. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Alfreð opnar markareikninginn í Þýskalandi: Alfreð hefur á sínum ferli skorað fyrir Breiðablik í efstu deild á Íslandi, Lokeren í Belgíu, Helsinborg í Svíþjóð, Heerenveen í Hollandi, Real Sociedad á Spáni, Olympiacos í Grikklandi og nú Augsburg í Þýskalandi. Það sem gerir afrek Alfreðs enn merkilegra er að hann er búinn að skora í efstu deild í sjö löndum aðeins 27 ára gamall. Hann er tíu árum yngri en Eiður þegar hann skoraði í sjöunda landinu, Kína, í september á síðasta ári. Eiður Smári hefur skorað í efstu deild fyrir Val á Íslandi, PSV Eindhoven í Hollandi, Chelsea og Tottenham á Englandi, Barcelona á Spáni, AEK í Grikklandi, Cercle og Club Brugge í Belgíu og Shijiazhuang Ever Bright í Kína. Eiður Smári getur aftur á móti bætt áttunda landinu í sarpinn í mars þegar hann hefur leik með sínu nýja liði Molde í norsku úrvalsdeildinni.
EM 2016 í Frakklandi Þýski boltinn Mest lesið Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Ekkert bit í snáknum: „Hörmulegur og ætti að hætta“ Sport Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Enski boltinn Stoltur af stráknum en ætlar ekki að kaupa hann aftur Handbolti „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Enski boltinn Jókerinn með tölvuleikjatölfræði á jóladag Körfubolti Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Goðsögn fallin frá Enski boltinn Fleiri fréttir Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Óvissa í Indlandi lætur City selja Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo „Þú birtir falsfrétt um mig, þú ert í banni“ Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Sjá meira